40 ár og enginn axlar ábyrgð á ónýtu fiskveiðikerfi til að byggja upp fiskistofna okkar að nýju. Eða er verið að leita leiða til að sporna við áhrifum sem gætu verið afleiðingar af þessari niðurstöðu.
40 ára tilraun með fiskveiðikerfi sen ætti tafarlaust að stöðva
Nú hafa skip og veiðarfæri stækkað verulega.Veiðistýringar verið færðar nær með óæskileg veiðarfæri sem eru ekkert í líkingu við það veiðarfæri sem upprunalega var vafamál að leyfa á grunnslóð.
Mörg veiðarfæri hafa horfið úr útgerð svo að mynda tildæmis net sem hægt var að stýra stærð fisks sem var veiddur eftir möskvastærð
Held einfaldlega að eftir 40 ára tilraun með svona fiskveiðikerfi ætti tafarlaust að hætta notkun þess og skoða nýjar leiðir þar sem þetta kerfi er úrelt og ónýtt. Við erum í 24-6 sæti í útgefnum aflaheimildum í heiminum að mig minnir. Við erum allavega sandkorn í heildarmyndinni.
Hvers vegna geta allar þessar þjóðir veitt meira en við litla Ísland með besta fiskveiðikerfi í heiminum? Erum samt eyja í miðri hringiðu allra hinna sem lýtur út fyrir að séu hreinlega að gera eitthvað sem telst vera mikklu betra en við með okkar handónýta fiskveiðikerfi sem á samt að vera frábærasta í heiminum.
40 ár enginn árangur og minna til að skipta á milli útgerðaflokka
Eða best, af hverju erum við þá ekki best og í fyrsta sæti á heimsvísu eftir 40 ára notkun með besta fiskveiðikerfi í heiminum.
Af hverju erum við nr 24 í röðinni?
40 ár enginn árangur bara minkað og minna til að skipta á milli útgerðaflokka.
Stórútgerð sem hefur farið með veiðar síðustu áratugina er hreinlega rányrkja sem fer illa með fiskistofna okkar þjóðar.
Þessu er einfaldlega ekki hægt að mótmæla. Sagan staðfestir þessa staðhæfingu. Af hverju eru þessar veiðar ekki stöðvaðar tafarlaust þegar sýnt er að fullt af tegundum er í útrýmingarhættu Samhliða því að aðalatvinnu
Og undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar er í hættu vegna rányrkju skipa stórútgerðar. Sem verður ekki skilið öðruvísi þar sem þeir nýta nú allt árið með sín skip og hafa einokað fiskimiðin síðustu áratugina.
Strandveiðar sem nýta 3-5 % úr árinu á veiðum í 30 daga eru væntanlega ekki orsök af því hvernig komið er fyrir auðlind okkar.
Tímabært er að fá hingað inn erlent ransóknafólk sem gerir úttekt á hvers vegna við rekum hér áfram handónýtt fiskveiðikerfi sem hreinlega ógnar mataröryggi okkar landsmanna. Og hvers vegna stjórnvöld láta kyrt liggja og hreinlega horfa í hina áttina til þess að stugga ekki við þessum fyrirtækjum sem ráða yfir svo miklu meira en bara íslenskum fyrirtækjum sem og innviðum og allskonar erlendis líka.
Getur verið að litla Ísland sé spillt og því vilji stjórnvöld ekki hrófla við því ægivald sem fylgir því að ráða yfir auðlindum þjóðarinnar.
Nú horfir öðruvísi við ný ríkisstjórn sem hefur fullt af nýjum og ferskum þingmönnum sem ættu að setja þetta allt í forgang á nýju ári.
Fara tímabundið með nýtingarrétt á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar