Kosningamisferli í Reykjavík?
Þá er gott að eiga góða að…… :
Lýðræðis og mannréttindaskirfstofa (LMS) ÖSE hefur nú, án nokkurrar skoðunar og á mettíma gefið út yfirlýsingu um að stofnunin ætli ekki að skoða misferlið né gefa út neina yfirlýsingu er varðar misferlið??
Allt innan tveggja sólahringa frá birtingu úrskurðar Persónuverndar um að DBE og meirihuti hans hafi orðið uppvís að alvarlegu misferli á sjálfum kjördegi og í aðdraganda hans?
ÖSE sem er þekkt fyrir að gefa út yfirlýsingar við minnsta tilefni þegir nú? Og tilkynnir sértaklega að þeir ætli að þegja?
ÖSE, hvers megin hlutverk er, að fylgjast með að misferli sé ekki beitt í kosningum í hinum vestræna heimi?
Það er því alvalegt mál að ÖSE skuli hafna skoðun málsins fyrirfram. Grafalvarlegt mál!
Hvernig má þetta vera?
Skoðum málið :
Borgarstjórinn í Reykjavík er Dagur B. Eggertsson (Sf)
Forstjóri LMS hjá ÖSE er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf)
Já þar er sannarlega gott að eiga góða að þegar á braggan er að sækja…….
Í millitíðinni hefur undirrituðum fyrirvaralaust verið meinaður aðgangur að undirbúningsfundum þeirra ráða sem hann situr í hjá borginni, sem og öðrum fulltrúum minnihlutans…..
Lýðræði? Hvað er það?
Gegnsæi? Hvað er það?