• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 2. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stöndum saman og stöðvum sölu bankanna!

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, þau Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson, hafa lýst yfir að nú skuli hefja undirbúning á sölu Íslandsbanka þrátt fyrir að ljóst sé að ekki muni fást fullt verð fyrir bankann og hann verði því seldur með tapi. Við sem þjóð erum enn brennd eftir hrunið 2008 sem hafði afdrifarríkar afleiðingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki í landinu. Í kjölfar hrunsins bjargaði ríkið bönkunum með tilheyrandi útgjöldum úr ríkissjóði og nú loks þegar íslenska þjóðin sér þá fjárfestingu bera ávöxt þá vilja ráðamenn rífa hana af þjóðinni og selja á undirverði. Nei, takk.
Við höfum ítrekað þurft að horfast í augu við brostin loforð og svik af hálfu ríkisstjórnar Íslands. Hver man ekki eftir því þegar byggja átti spítala fyrir þá upphæð sem fengist fyrir söluna á Landsímanum árið 2005. Nú eru liðin 15 ár og sá spítali hefur enn ekki risið og nú á að leika sama leikinn aftur og hafa fé af þjóðinni sem hún sárlega þarf á að halda. Ávöxtun eiginfjár bankans, fyrstu þrjá ársfjórðunga 2019, nam allt að 7,9% sem telst alveg frábært. Bankar um alla Skandinavíu eru metnir yfir bókfærðu verði en nú talar Bjarni Benediktsson um að selja Íslandsbanka langt undir því þrátt fyrir góða ávöxtun hans. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru glórulausar og munu kosta þjóðina stórfé. Hingað og ekki lengra!
Á https://synjun.is/ er að finna undirskriftasöfnun þar sem skorað er á forsetann að beita sér gegn sölu bankanna. Á bak við áskorunina standa Guðmundur Franklín Jónsson og Hildur Sif Thorarensen. Allir sem eru andvígir sölunni eru hvattir til að skrá sig.
https://gamli.frettatiminn.is/rikisstjornin-aetlar-ad-hundsa-vilja-thjodarinnar-vardandi-einkavaedingu-bankanna/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • Alþingismanni hótað

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Stjórnarsáttmáli sem Viðreisn og Samfylkingin meintu raunverulega ekki neitt með

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?