• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Heims­met gæti hafa fallið

F.v.Gunnar Örn Marteinsson yfirstýrimaður, Gunnar Freyr Valgeirsson yfirvélstjóri, Óttar Már Einarsson annar vélstjóri, Sævar Þór Rafnsson skipherra. Ljósmynd/Aðsend

Heims­met gæti hafa fallið

,,43 tonn af stórþorski, bara bolt­ar"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Heims­met gæti hafa fallið á dög­un­um þegar áhöfn­in á línu­bátn­um Vig­ur SF-80 tókst að ná tæp­lega 43 tonn­um á 18 þúsund króka í einni lögn. 200 mílur hjá mbl.is vakti athygli á málinu og þar segir.

„Fólk held­ur þetta sé grín þegar ég segi frá þessu. Þetta er rétt tæp 43 tonn af stórþorski, bara bolt­ar. Meðal­vigt­in er tæp níu kíló. Við höf­um aldrei heyrt af öðru eins og töl­um um að þetta hljóti að vera heims­met,“ seg­ir Sæv­ar Þór Rafns­son skip­stjóri og hlær.

Svo mikið af var af fiski að í flækj­um voru ein­hver 300 til 400 kíló af fiski sem þurft að greiða úr, en gef­um skip­stjór­an­um orðið: „Metið at­vikaðist þannig að við fór­um til sjós frá Djúpa­vogi, sigld­um beint í heima­hag­ana við Horna­fjörð og lögðum alla lín­una, sem er um 18.000 krók­ar. Eft­ir stutt­an en góðan blund byrjuðum við að draga, þegar við höfðum dregið 5 rekka af 11 voru öll kör orðin full og haldið var í land til milli­lönd­un­ar með rétt tæp 20 tonn.“ Segir á vef mbl.is og jafnframt.

„Haldið var aft­ur til hafs stuttu eft­ir lönd­un til að draga það sem eft­ir var. Seinni helm­ing­ur­inn var ekki sami gull­stíg­ur og sá fyrri því gíg­an­tísku magni af fiski fylgdi viðlíka magn af flækj­um. Þetta hafðist þó með tár á hvarmi og rúm 23 og hálft tonn í dall­in­um,“ út­skýr­ir Sæv­ar.

Heild­arafli á þess­ari lögn reynd­ist 42.893 kíló og er óhætt að segja að áhöfn­in sé ánægð með afla­brögðin en fjór­ir eru í áhöfn Vig­urs og eru það auk Sæv­ars yf­ir­stýri­maður­inn Gunn­ar Örn Marteins­son, yf­ir­vél­stjór­inn Gunn­ar Freyr Val­geirs­son og ann­ar vél­stjóri Óttar Már Ein­ars­son.

Fyr­ir blaðamanni Mbl.is er fley­inu lýst sem „drauma­skút­unni Vig­ur SF 80, sem er um 15 metra að lengd, um 30 brútt­ót­onn.“

Auglýsing – https://arnfjord.uk/ 

Auglýsing – https://arnfjord.uk/ 

Umræða
Share12Tweet8
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    210 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?