• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 10. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sindri M. Stephensen og Særún María Gunnarsdóttir skipuð í embætti héraðsdómara

Sindri M. Stephensen og Særún María Gunnarsdóttir skipuð í embætti héraðsdómara

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Dómsmálaráðherra hefur skipað Sindra M. Stephensen í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstóla eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Dómsmálaráðherra hefur jafnframt skipað Særúnu Maríu Gunnarsdóttur í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Báðar skipanirnar eru frá og með 9. mars 2026.

Þá hefur verið fallið frá setningu í embætti héraðsdómara sem auglýst var til umsóknar 5. desember 2025.

Sindri M. Stephensen lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2012 og meistaraprófi í lögfræði frá sama skóla 2014. Þá lauk hann Mag.jur gráðu frá Oxford háskóla 2017 og útskrifaðist 2019 með diplómu í opinberri stjórnsýslu frá stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Árið 2015 öðlaðist hann réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Að loknu lagaprófi starfaði Sindri á lögmannstofu og  sem aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn. Frá 2019 hefur hann starfað við lagadeild Háskólans í Reykjavík, þar af sem lektor frá því ári og sem dósent frá 2021. Frá 4. apríl 2024 hann verið settur dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þá hefur Sindri ritað bæði fræðirit og fjölmargar fræðigreinar á sviði lögfræði. Af öðrum störfum má nefna að Sindri hefur gegnt starfi formanns nefndar sem metur lausn embættismanna um stundarsakir, setið í kærunefnd útlendingamála auk þess að vera forstöðumaður Réttarfarstofnunar Háskólans í Reykjavík frá 2020.

Særún María Gunnarsdóttir lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2004. Að loknu laganámi hóf hún störf sem lögfræðingur hjá Persónuvernd og starfaði til ársins 2008 þegar hún hóf störf sem lögfræðingur hjá embætti umboðsmanns Alþingis. Særún María hefur starfað hjá umboðsmanni Alþingis frá þeim tíma, þar af sem skrifstofustjóri frá 2015 og sem aðalskrifstofustjóri frá 2022 og hefur í því starfi komið að ritun fjölda lögfræðilegra úrlausna. Þá hefur Særún sinnt bæði fræðastörfum og kennslu í lögfræði við þrjá íslenska háskóla. Af öðrum störfum má nefna að hún hefur komið að gerð lagafrumvarpa  og verið til ráðgjafar um löggjöf á málefnasviði umboðsmanns Alþingis og persónuverndar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Netsvindl, fjárkúgun og fleira

    Laus hundur veittist að barni

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • „Bankinn stjórnar lífi þínu“ – margir viðskiptavinir reiðir vegna eftirlits bankanna

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón – FIMMTA SÆTI YFIR MEST LESIÐ 2025

    986 deilingar
    Share 394 Tweet 247
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?