Eurojackpot hljóðaði upp á um fjórtán milljarða
Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld en fjórir skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 808 milljónir króna, miðarnir voru keyptir í Slovakíu, Finnlandi og tveir í Þýskalandi.
Þrettán skiptu með sér 3. vinningi og fá þeir rúmlega 13 milljónir króna hver. Miðarnir voru keyptir í Póllandi, tveir í Finnlandi, tveir í Danmörku og átta í Þýskalandi.
Einn var með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fær 100 þúsund krónur. Miðinn var keyptur í N1, Skógarseli í Reykjavík. Heildarfjöldi vinningshafa á Íslandi var 4.883.
Umræða