• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Valdir sérfræðingar eða aðrir sem mæla með þriðja orkupakkanum, munu aldrei bera nokkra ábyrgð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. maí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ásta Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna

,,Sporin hræða. Stjórnmálamenn, eftir ráðgjöf valinna sérfræðinga, einka- og markaðsvæddu bankana með skelfilegum afleiðingum ásamt því að gefa yfirráðin yfir fiskimiðunum okkar til fárra útvaldra sem síðan hafa makað krókinn.
Endurtökum ekki mistök fortíðarinnar. Höldum orkunni okkar í þjóðareigu því þar liggja hagsmunir heimilanna um alla framtíð.“

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna ályktaði um orkupakka 3.

Núverandi ríkisstjórn

Hagsmunasamtök heimilanna lýsa yfir andstöðu við svokallaðan þriðja orkupakka í óbreyttri mynd.
Samtökin beina því til utanríkisráðherra og alþingismanna að nýta sér 102. grein EES samningsins og sækja um undanþágu frá þriðja orkupakkanum, enda tengist landið ekki orkumarkaði ESB.
Aðstæður á Íslandi er allt aðrar en á meginlandi Evrópu og við berum ábyrgð gagnvart börnum okkar og barnabörnum á að engin vafi leiki á að orkan okkar verði alltaf sameign þjóðarinnar. Það má aldrei vera háð neinum lögfræðilegum vafa eða einföldum meirihluta á Alþingi.
Hagsmunasamtökin vilja jafnframt benda á að hvorki ráðherrar, stjórnmálaflokkar, valdir sérfræðingar eða aðrir sem mæla með þriðja orkupakkanum, munu bera nokkra ábyrgð á gjörðum sínum þegar afleiðingar þeirra skella af fullum þunga á komandi kynslóðum.
Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms

Skammt er að minnast skelfilegra aðgerða í kjölfar hrunsins, þar sem heimilum landsins var fórnað á altari markaðsaflanna, í samráði við valda „sérfræðinga“.
Þá var þingi og þjóð sagt að um góðar aðgerðir til hjálpar heimilunum væri að ræða. Raunin reyndist önnur og síðan hafa a.m.k. 15.000 fjölskyldur glatað heimilum sínum auk þess sem gerð hafa verið 117.000 fjárnám hjá 340.000 manna þjóð á 10 árum.
Enginn einasti þeirra ráðamanna sem að þessum aðgerðum stóðu hafa fengist til að svara fórnarlömbum sínum einu orði um gjörðir sínar og á engan hátt borið nokkra ábyrgð á þeim þrátt fyrir eyðilegginguna sem þær höfðu í för með sér.
Sporin hræða. Stjórnmálamenn, eftir ráðgjöf valinna sérfræðinga, einka- og markaðsvæddu bankana með skelfilegum afleiðingum ásamt því að gefa yfirráðin yfir fiskimiðunum okkar til fárra útvaldra sem síðan hafa makað krókinn.
Endurtökum ekki mistök fortíðarinnar. Höldum orkunni okkar í þjóðareigu því þar liggja hagsmunir heimilanna um alla framtíð.
Sjá nánar í umsögn HH um málið á vef Alþingis.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Setja pólitíska hagsmuni sína í fyrsta sæti

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    115 deilingar
    Share 46 Tweet 29
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?