• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Katrín er of pólitísk fyrir forsetaembættið og skrýtið að hún sé að fara í þetta“

Jón Gnarr, forsetaframbjóðandi

Jón Gnarr Forsetaframbjóðandi í andlegu málin með Gísla Hvanndal

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. maí 2024
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Ég vona að allir Íslendingar geri sér grein fyrir því að það sé rétt ákvörðun að kjósa Jón Gnarr sem næsta forseta Íslands því hann er hlutlaus og vill virkilega vinna fyrir þjóðina en ekki fyrir sjálfan sig.

Hér er viðtal sem ég tók við hann fyrir tveimur dögum:

Gísli Hvanndal Jakobsson miðill og læknamiðill

Grein eftir Gísla Hvanndal Jakobsson

Eru fjölmiðlar vísvitandi að reyna að hafa áhrif á forsetakosningarnar?

Nú sjáum við fréttir af ýmsum forsetaframbjóðendum en það sem ég hef tekið eftir er að fjölmiðlar sniðganga Jón Gnarr Forsetaframbjóðanda.

Er ákveðið fólk hrætt við að Jón verði forseti Íslands og sniðganga hann í fjölmiðlum?

Fólk í samfélaginu segir að það yrði hræðilegt ef stjórnmálamaður/kona yrði forseti. Sá aðili hefði beina tengingu við vini sína á alþingi og alvarlegar ákvarðanatökur sem gætu komið upp með sitjandi forseta gætu ekki verið teknar af heilindum eða embættið misnotað á einhvern hátt. Og það er bara ein ástæða.

Finnst ykkur sem þetta lesið, framboð Katrínar Jakobsdóttur eðlilegt? Ég meina sitjandi forsætisráðherra stendur upp úr stól sínum skellir í lás, segir upp starfi sínu, kveður Alþingi og býður sig fram til Forseta íslands? Og Bjarni Ben tekur við af henni? Finnst ykkur þetta ábyrg hegðun af sitjandi forsætisráðherra að gera? Finnst ykkur þessi hegðun og hugsunarháttur endurspegla góðan forseta? Og snýst þetta um METORÐAGIRND í stað heilinda gagnvart land og þjóð? Gagnvart Íslensku þjóðinni?

Jón Gnarr er ekki spilltur af pólitík eins og sumir forsetaframbjóðendur eða hefur neinn feril af sviknum loforðum gagnvart þjóðinni eins og til að mynda Katrín Jakobsdóttir gegn eldri borgurum og öryrkjum svo eitthvað sé nefnt. Hann er ekki heldur að bjóða sig fram í eigin þágu af einhverskonar metorðagirnd. Hann er að gera það til þjóna þjóðinni.

Hann er fæddur leiðtogi og hefur mikla hæfni til mannlegra samskipta eins og hann sýndi og sannaði þegar hann stofnaði ,,Besta flokkinn” og sigraði kosningarnar á þeim tíma og varð borgarstjóri Reykjavíkur og breytti á ákveðinn hátt landslaginu í íslenskri pólitík sem var orðið frekar svart. Hann gerði þetta fyrir Íslendinga en ekki sjálfan sig. Og nú finnst mér vera komin upp sama staða í þjóðfélaginu. Jón Gnarr er einlægur, greindur, með djúpt innsæi, hann er traustvekjandi og hefur hæfileikann til að taka erfiðar ákvarðanir þegar þarf.

Við þurfum svoleiðis forseta á þessum tímum.

Jón er með góða nærveru og ímynd sem er mikilvægt þegar kemur að því að kynna land og þjóð og hitta aðra þjóðarleiðtoga í heiminum. Hann er kærleiksríkur, friðarsinni og sannur og maður orða sinna Hann er með mikla félagslega hæfni og reynslu til góðra samskipta. Hann kemur vel fram út á við, er virðulegur og meira af öllum frambjóðendum er hann ,,einn af þjóðinni sem við getum tengt sterkt við á persónulegan hátt vegna hans ferils í lífinu.“

Jón Gnarr er maður fólksins og það er enginn yfirborðsmennska í honum eða ósannindi. Hann kemur fram eins og hann er klæddur og hefur alltaf gert. Þess vegna ætla ég að kjósa Jón Gnarr sem næsta Forseta Íslands. Því hann er hæfastur í starfið og er sönn fyrirmynd.”

Ef stjórnmálamaður, eins og fyrrverandi forsetisráðherra yrði kosin sem Forseti Íslands em hljóp úr næst stærsta embætti Íslands fyrir nokkrum dögum, því hún vildi ná á toppinn á ferli sínum með því að gerast forseti þá yrði það hræðilegt fyrir land og þjóð og ég vona að allir átti sig á því. Eins með alla aðra.

Jón kom að stjórnmálum fyrir 10 árum en ekki 10 dögum eins og til að mynda Katrín Jakobsdóttir. Og það er stór munur á þeim sem pólitísku afli. Jón hefur aldrei setið á alþingi og hvað þá verið forsetisráðherra.

Ég vona að allir Íslendingar geri sér grein fyrir því að það sé rétt ákvörðun að kjósa Jón Gnarr sem næsta forseta Íslands því hann er hlutlaus og vill virkilega vinna fyrir þjóðina en ekki fyrir sjálfan sig.

Höfundur er podcast stjórnandi og andlegur leiðbeinandi.

Umræða
Share6Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?