• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Heimilin eiga skýlausan rétt á óháðri ráðgjöf á fjármálamarkaði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
10. júní 2020
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent félagsmálaráðherra erindi þar sem þau fara fram á að fá fjárveitingar til jafns við Umboðsmann skuldara til að aðstoða neytendur og berjast fyrir réttindum þeirra á fjármálamarkaði.

Rökin fyrir slíkri fjárveitingu eru m.a. eftirfarandi:

● Aðstöðumunur: Allt „kerfið“ stendur með fjármálafyrirtækjunum.
● Ofurefli: Neytandi má sín einskis komi upp ágreiningur á milli hans og bankans.
● Þekking: Gríðarleg sérþekking á málefnum skuldara og réttindum neytenda á fjármálamarkaði hefur safnast upp innan vébanda Hagsmunasamtaka heimilanna. Þessa
þekkingu er hvergi annars staðar að finna.
Árið 2010 var embætti Umboðsmanns skuldara stofnað en það sinnir ekki neytendavernd og hefur því miður ekki virkað sem skyldi fyrir skuldara. Ekki er til eitt einasta dæmi um að UMS hafi mótmælt kröfu banka fyrir hönd skuldara eða farið fram á endurútreikninga því það er ekki hans hlutverk að rugga bátnum. UMS gerir hins vegar greiðsluáætlun fyrir skuldarann til að standa undir kröfum bankans. Embætti UMS er á framfæri fjármálafyrirtækjanna og hefur fengið um 5 milljarða frá stofnun til að sinna þessu hlutverki.
Í öllu „kerfinu“ er enginn aðili sem gætir réttinda neytanda á fjármálamarkaði. Þar eru hins vegar ansi margir sem með beinum og óbeinum hætti gæta hagsmuna fjármálafyrirtækja.
Hagsmunasamtök heimilanna eru þau einu á Íslandi sem gæta hagsmuna og réttinda neytenda á fjármálamarkaði og það hefur því miður sýnt sig að ekki er vanþörf á. Það er sorgleg staðreynd að þó staða neytenda á fjármálamarkaði sé alls ekki góð, væri hún mun verri ef Hagsmunasamtaka heimilanna hefði ekki notið við.
Það er einnig staðreynd að Hagsmunasamtök heimilanna hafa hjálpað meira en 4000 einstaklingum og fjölskyldum með beinum hætti, í baráttu þeirra við banka og fjármálastofnanir, sem eru svipað margir og þeir sem komist hafa í gegnum skilyrði UMS til að hljóta aðstoð.
Í því samhengi má minna á að Hagsmunasamtök heimilanna eru grasrótar og sjálfboðaliðasamtök sem eru rekin með valkvæðum félagsgjöldum og nær engum opinberum styrkjum.
Það er eitthvað mjög skakkt við þessa mynd auk þess sem það samsvarar illa valfrelsi neytenda að einungis sé í boði „ein ríkisleið“, lendi fólk í vanda með fjárskuldbindingar sínar.
Neytendur eiga rétt á óháðri ráðgjöf um stærstu skuldbindingar lífsins og að hafa val um hvert þeir leita, þurfi þeir aðstoð eða óháða ráðgjöf um möguleika sína og leiðir. Það eru grundvallarmannréttindi.
Það minnsta sem núverandi ríkisstjórn getur gert er að tryggja jöfnuð og að skuldarar eigi kost á bestu hjálp og réttargæslu sem til er.
Því verður ekki á móti mælt að þekkingin á réttindum neytenda á fjármálamarkaði er hvergi meiri en innan Hagsmunasamtaka heimilanna og það er skýlaus skylda ríkisstjórnarninnar að tryggja
aðgengi neytenda að henni.
Fasteignalán heimilanna eru stærstu skuldbindingar þeirra. Samt er ekki um nein formleg fjárframlög að ræða frá ríkinu fyrir óháða neytendavernd á fjármálamarkaði sem þarf nauðsynlega að vera til staðar, líka í góðæri. Nú er kreppa í uppsiglingu og ljóst að mörg heimili munu lenda í vandræðum og þurfa á ráðgjöf að halda og því enn meiri nauðsyn enn annars að tryggja neytendum óháða og góða ráðgjöf um réttindi sín og lánamöguleika.
Hagsmunasamtök heimilanna telja eðlilegt til að alls jafnræðis sé gætt að þau fái sömu fjárveitingar og UMS, en sé tregða til að auka útgjöld úr ríkissjóði á þessum tímum gerum við það að tillögu okkar að það fé sem ætlað sé til rekstrar UMS, skiptist jafnt á milli embættisins og Hagsmunasamtaka heimilanna, til hagsbóta fyrir skuldara og neytendur á fjármálamarkaði.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?