Miðað við bráðabirgðatölur sem byggja á fyrstu skilum fyrir júlímánuð má ætla að gistinætur á hótelum í júlí hafi verið um 364.100 (95% öryggismörk 349.900-378.300), þar af hafi gistinætur Íslendinga verið um 109.600 (95% öryggismörk 98.900-120.400) og gistinætur útlendinga um 254.500 (95% öryggismörk 240.400-268.500).
Borið saman við 226.400 gistinætur í júlí 2020 má ætla að orðið hafi um það bil 61% aukning í fjölda gistinátta í júlí á milli ára. Þar af má ætla að gistinóttum útlendinga hafi fjölgað um 170% en gistinóttum Íslendinga hafi fækkað um 17%. Til frekari samanburðar má nefna að gistinætur á hótelum í júlí 2019 voru 507.800, þar af voru gistinætur útlendinga 468.200.
Samkvæmt sömu áætlun var rúmanýting í júlí 2021 um 58,5% (95% öryggismörk: 56,3%-60,8%) samanborið við 40,7% í sama mánuði í fyrra.
Bráðabirgðatölur fyrir júní 2021 gerðu ráð fyrir að gistinætur hefðu verið um 157.900 (95% öryggismörk 145.900-169.900). Þegar búið var að vinna úr öllum tölum fyrir júní reyndist endanlegur fjöldi hótelgistinátta vera 188.000 eða allnokkru hærri en upphaflegt mat gerði ráð fyrir.
Miklar breytingar eiga sér nú stað á framboði á hótelrýmum og eykur það mjög óvissu í bráðabirgðamati á fjölda gistinátta. Því er rétt að taka þessum áætluðu bráðabirgðatölum um fjölda gistinátta á hótelum í júlí með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur verða birtar í lok ágúst.