Foreldrar beðnir um að sækja barnið í skólann
Tilkynning um lúsina er fastagestur í pósthólfum foreldra allan ársins hring um allt land. Eftirfarandi póstur barst foreldrum barna í Grunnskóla Vestmanneyja og greina Eyjafréttir frá málinu:
„Sæl veri þið
Lúsin heldur áfram að poppa upp hjá okkur í skólanum og því þurfum við að gera róttækar aðgerðir.
Í dag fóru nemendur heim með blað þar sem þið verðið að kemba börnin og kvitta fyrir að þið hafið kembt barnið. Þessu blaði á að skila á morgun, föstudag 10.janúar.
Ef það eru einhverjir sem skila ekki blaðinu á morgun, þá verður hringt í þá foreldrar og þeir beðnir um að sækja barnið í skólann.“
Eyjafréttir höfðu samband við Óskar Jósúason aðstoðarskólastjóra og spurðu hann út í málið. „Það kemur reglulega upp í árgöngum að börn eru ekki að losna við lúsina. Þá þarf bara að fara í svona samstillt átak foreldra og skóla. Sem betur fer er þetta nú ekki algengt.“ Eyjafréttir