Hækkun launa bankastjóra Landsbankans í 3.8 milljónir, mun hafa gríðarleg áhrif á kjaraviðræður sem nú eru í gangi. Vilhjálmi Birgissyni blöskrar sú hækkun sem að bankasjóri ríkisbankans, Landsbankans, hefur fengið á einu ári en hækkunin nemur 82% á ársgrundvelli. Laun hennar eru í da 3.800.000 krónur fyrir utan öll fríðindi. Bankaráð Landsbankans hækkaði mánaðarlaun bankastjórans, Lilju Bjarkar Einarsdóttur, um 17 prósent í fyrra eða um 550 þúsund krónur. Hækkuðu svo mánaðarlaunin úr 3.250.000 krónum í 3.800.000 krónur þann 1. apríl 2018. Hækkunin kom innan við ári frá annarri launahækkun bankastjórans sem fékk hækkun upp á tæpar 1,2 milljónir á mánuði 1. júlí 2017
,,Það er óhætt að segja að þetta séu sturlaðar og galnar launahækkanir, enda hækkar bankastjóri Landsbankans um 1,7 milljón á mánuði eða sem nemur 82% á einu ári.
Já þetta eru svo sannarlega galinn og sturluð launahækkun sem klárlega mun leiða til þess að forherða okkur í verkalýðshreyfingunni berjast af alefli fyrir því að ráðstöfunartekjur lágtekjufólks hækki þannig að þau dugi fyrir nauðþurftum frá mánuði til mánaðar.
Nú verður hins vegar afar fróðlegt að sjá og heyra viðbrögð frá Seðlabankastjóra, fjármálaráðherra, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins að ógleymdum Herði Ægissyni leiðarahöfundi Fréttablaðsins við þessari sturluðu launahækkun bankastjóra Landsbankans sem er nánast í 100% eigu ríkisins.
Ég er eiginlega ekki í nokkrum vafa um að ákvörðun um að hækka laun bankastjóra Landsbankans um 1,7 milljón á mánuði mun hafa gríðarleg áhrif á þær kjaraviðræður sem nú eru í gangi.
Það er einnig fátt sem því miður virðist ætla að koma í veg fyrir hörð átök á íslenskum vinnumarkaði enda er íslenskt verkafólk búið að fá uppí kok af þessari misskiptingu, óréttæti og ójöfnuði í íslensku samfélagi.“ Segir Vilhjálmur Birgisson.