Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að ráðast í endurgerð hraðahindrana í borginni á árinu 2025. Verkefnið verður boðið út í tveimur áföngum og er áætlað að framkvæmdir hefjist í maí og ljúki í september.
Í tilkynningu segir að endurgerðin nái til hraðahindrana á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í Laugardal, Háaleitis- og Bústaðahverfi, Grafarvogi og Breiðholti. Verkefnið felur í sér jarðvinnu, malbikun, uppsetningu umferðarmerkja og yfirborðsmerkinga, auk lagningar granítkantsteina og upprampa.
Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdirnar er 200 milljónir króna. Markmiðið með verkefninu er að bæta öryggi og aðgengi vegfarenda.
Á árinu 2025 verða endurgerðar eftirtaldar hraðahindranir:
- Við Álfheima í Laugardal
- Við Skeiðarvog í Laugardal
- Við Listabraut í Háaleitis- og Bústaðahverfi
- Við Langarima í Grafarvogi
- Í Norðurfelli við Fannarfell
- Í Norðurfelli við Eddufell
- Í Suðurhólum
- Í Austurbergi við Suðurhóla
- Í Vesturhólum við Arahóla
Þá segir í tilkynningunni að lokun gatna vegna framkvæmdanna verði í samráði við Strætó og aðra hagaðila til að lágmarka truflun á umferð.