Síðdegis sl. fimmtudag stöðvaði lögreglan á Vestfjörðum ökumann á Ísafirði þar sem hann ók gegn einstefnu. Við nánari athugun vaknaði grunur um að viðkomandi væri ölvaður og var hann handtekinn vegna þess. Blóðsýni var dregið úr ökumanninum og sent til rannsóknar.
Umferðarslys varð á Vestfjarðavegi í Kjálkafirði sl. föstudag er bifreið með hjólhýsi í eftidragi valt. Eignartjón varð nokkuð en meiðsl á þeim sem í bifreiðinni voru virtust ekki alvarleg en þó einhver.
Átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku og fá þeir sekt fyrir vikið.
Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir á Ísafirði vegna brota á reglum um eftirvagna auk þess sem tveir stjórnendur lyftara voru stöðvaðir en annar hafði ekki til þess tilskilin réttindi og hinn var á lyftara sem ekki uppfyllti skilyrði til að vera notaður í almennri umferð.
Þá var einn stöðvaður á óskráðu bifhjóli innanbæjar á Ísafirði sem og tveir stjórnendur smáfarartækja, sem eru rafhljópahjól og létt bifhjól í flokki 1, en þeir höfðu ekki náð tilskyldum aldri til að nota slík farartæki. Rétt er að benda á að stjórnandi slíkra tækja skal vera a.m.k. 13 ára gamall.
Sjö voru kærðir vegna brota á reglum um lagningu ökutækja. Sú tala fer almennt lækkandi og er það jákvætt.
Um helgina var tilkynnt um nytjastuld á bifreið á Patreksfirði. Bifreiðin fannst skömmu síðar. Málið er til rannsóknar.
Þá barst lögreglu á Patreksfirði tilkynning á laugardag um bílveltu við Hafnarmúla nærri Örlygshöfn. Ökumaður var einn í bifreiðinni og slapp ómeiddur.
Aðfaranótt sunnudags barst lögreglu tilkynning um ókunnugan einstakling sem knúði dyra með harkalegum hætti á hurð íbúðar í fjölbýlishúsi á Ísafirði. Er lögregla mætti á vettvang kom í ljós að viðkomandi var í röngu húsi. Viðkomandi sýndi mikla iðrun og var fylgt í rétt hús þar sem honum var tekið opnum örmum í réttri íbúð.
Nú er tekið að skyggja á kvöldin og um nætur. Því er rétt að árétta það við eigendur ökutækja og ökumenn að gæta þess að ljósabúnaður ökutækja þeirra sé í lagi og lögum samkvæmt.