Sjávarútvegssýningin SJÁVARÚTVEGUR / ICELAND FISHING EXPO 2025 er haldin 10. – 12. september í Laugardalshöll. Er sýningin sú fjórða og sú stærsta til þessa. Að sýningunni stendur sýningarfyrirtækið Ritsýn sf. Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri þess segis finna fyrir miklum áhuga á sýningunni bæði hér innanlands og víða um heim:
„ Sýningin stækkar með hverju árinu of fyllir nú öll sýningarsvæði Laugardalshallar. Sýningin er að þessu sinni afar fjölbreytt og áhugaverð. Á sýningunni eru allar tegundir af fyrirtækjum er þjóna íslenskum sjávarútvegi.
Gestir koma til með að sjá allt það nýjasta í hátækniútbúnaði er tengist fiskvinnslu og útgerð. Þá er mikið af nýjum fyrirtækjum að koma inn með sýningarbása og ber meðal annars að nefna fyrirtæki sem þjóna fiskeldinu bæði á sjó og landi.

Sýningin SJÁVARÚTVEGUR / ICELAND FISHING EXPO hefur einnig verið afar ánægjulegur mótstaður þeirra er koma að eða hafa áhuga. Á síðustu sýningu 2022 komu um fjörutíu þúsund gestir alls staðar að af landinu. Við búumst líka við miklum fjölda í ár og einnig finnum við fyrir auknum áhuga erlendra aðila víða um heim.“
Sjávarútvegssýningin er opin frá kl. 14 til 19 á miðvikudag 10. september og frá kl. 10-18 á fimmtudag og föstudag 11. og 12. september.



