• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

83,3% bókatitla prentaðir erlendis

Skólagjöld fyrir nemendur í samráðsgátt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. nóvember 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Drög að frumvarpi sem veitir opinberum háskólum lagaheimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES-svæðisins hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti áformin í ágúst sl. en Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem innheimtir ekki slík skólagjöld í dag.

Breytingin heimilar opinberum háskólum gjaldtöku skólagjalda af nemendum með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), Færeyja og Grænlands. Miðað skal við að gjaldtakan standi undir kennslu, rannsóknum og öðrum verkefnum skv. 1. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Í frumvarpsdrögunum eru skilgreindar undanþágur frá gjaldtökuheimildinni.

Tilefni og markmið breytinganna er að nýta opinber fjárframlög til háskóla betur og efla háskólastigið á Íslandi. Fjöldi erlendra umsókna í háskóla á Íslandi hefur stóraukist undanfarin ár en í Háskóla Íslands fjölgaði erlendum umsóknum úr 1472 fyrir síðasta skólaár, í 2285 fyrir núverandi skólaár. Þar af voru tæplega 2000 umsóknir frá nemendum utan EES-svæðisins. Sambærileg þróun hefur átt sér stað hjá hinum háskólunum hérlendis.

Ísland er í dag eina Norðurlandaþjóðin sem ekki innheimtir skólagjöld af nemendum utan EES-svæðisins. Mikilvægt er að opinberir háskólar hér á landi gangi í takt við hin Norðurlöndin og alþjóðaþróun á sviði háskólamála. Með tilkomu skólagjalda skv. frumvarpinu er fundin ný leið til þess að standa undir kostnaði við menntun nemenda utan EES-svæðisins og getur innleiðing skólagjalda leitt til þess að íslenskir háskólar verði eftirsóknarverðari kostur fyrir efnilega nemendur þar sem aukin samkeppnishæfni háskólanna í alþjóðlegum samanburði sem og bætt fjármögnun gerir þeim kleift að auka gæði og umfang námsins.

Samhliða breytingunum verða gerðar breytingar á gildissviði reglna, nr. 755/2024, um fjárframlög til háskóla, á þann veg að reglurnar taki almennt ekki til nemenda utan EES-svæðisins. Í því felst að loknar einingar og brautskráningar nemenda utan EES-svæðisins verða ekki taldar með í útreikningum á fjárframlögum hins opinbera til háskóla samkvæmt reglum nr. 755/2024. Þessu fylgir ekki niðurskurður heldur verður sama fjármagni dreift á færri nemendur skólanna, þ.e. einungis nemendur innan EES-svæðisins.

Nánari upplýsingar um frumvarpsdrögin má nálgast í samráðsgátt. Umsagnarfrestur er til 6. desember.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    97 deilingar
    Share 39 Tweet 24
  • Kona í gæsluvarðhaldi og grunuð um morð á dóttur og eiginmanni

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Alvarleg líkamsárás – Lögreglumenn veittu árásarþola fyrstu hjálp

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Almenningi misboðið áratugum saman – Leiðrétt veiðigjöld aðeins brot af hagnaði

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?