,,Að henda fiski eru ekki sjálfbærar veiðar, heldur rányrkja“ – Ólafur skipstjóri varaði ítrekað við brottkastinu fyrir fjórum árum
,,Við hendum heilu hollunum ef það passar ekki í vélarnar“
,,Fyrir 4 árum talaði ég um brottkastið, smábáta og Kleifarbergið. Og hvað er komið í ljós?“ Segir Ólafur Jónsson gamalreyndur togaraskipstjóri eða “fiskveiðifræðingur“ eins og hann segir í myndbandi sínu.
En Ólafur er einn af reyndustu skipstjórum á Íslandi og var oft einn af þeim aflahæstu á landinu á Íslandsmiðum. Hann segir sjálfur svo frá að hann sé ,,harður andstæðingur kvótakerfisins og hafi barist gegn því frá 1984. Versta mein Íslands fyrr og síðar! Aðeins tvennt sem fær menn til að mæla með kvótanum. Annars vegar heimska og hins vegar græðgi! “ Segir Ólafur.
,,Eigendur Íslands og ráðandi öfl landsins alls. Koma í veg fyrir að þú og ég og fólkið í landinu setji sér sína eigin stjórnarskrá! Viðbjóðurinn er hvergi augljósari. Og munum, núna eru þau í boði Katrínar Jakobsdóttur sem hættir svo í stjórnmálum eftir kjörtímabilið.“
Hér að neðan er myndbandið þar sem að hann segir nú að hann hafi verið að tala um Kleifabergið fyrir fjórum árum síðan en nefndi það ekki á nafn.
https://www.facebook.com/olafur.olafur/videos/10205845622525153/?t=145