• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Austan stormur eða ofsaveður (Gult ástand) – Yfir 20 stiga frost og ekkert ferðaveður

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Austan stormur eða ofsaveður (Gult ástand) – 14 feb. kl. 03:00 – 21:00

Nú er kalt á landinu og mest frost í nótt mældist 16,4 stig á Sandskeiði, 15,2 stig á Húsafelli, 14,1 stig á Grímsstöðum á Fjöllum og 13,7 stig í Víðidal við reiðvöll Hestamannafélagsins Fáks.
Í dag er útlit fyrir norðlæga átt og vindhraði yfirleitt innan við 10 m/s. Það má búast við dálitlum éljum á norðanverðu landinu og einnig eru stöku él á sveimi við suðurströndina. Annars staðar á landinu er ekki útlit fyrir úrkomu. Það herðir enn á frosti í kvöld. Í nótt og fyrramálið gæti 20 stiga frost eða meira mælst á einhverjum stöðum, líklegast er að það gerist inn til landsins þar sem lægðir eru í landslagi. Seint á morgun fer síðan að hvessa úr austri.
Spár fyrir illviðri föstudagsins eru lítið breyttar og verða smám saman líklegri til að rætast eftir því sem nær dregur. Þegar þetta er skrifað snemma á miðvikudagsmorgni er lægðin sem á að valda óveðrinu stödd suðvestur af Nýfundnalandi og er skýjakerfi hennar greinilegt á tunglmyndum. Óveðurslægðin fer til austurs út á Atlantshaf í dag og dýkpar ört, en á morgun tekur hún stefnu til norðurs og nálgast okkur. Búist er við að óveðrið hafi náð hámarki á Íslandi á föstudagsmorgun. Viðvaranir vegna veðursins verða uppfærðar í dag eftir því sem nýjar og nákvæmari spár berast.
Austan stormur eða ofsaveður (Gult ástand) – 14 feb. kl. 03:00 – 21:00
Spár gera ráð fyrir að sérlega djúp lægð nálgist landið úr suðvestri (þrýstingi í lægðarmiðju er spáð niður í 930 hPa). Búast má við austlægum stormi, roki eða ofsaveðri, hvassast sunnantil á landinu framan af degi. Víða snjókoma eða slydda, úrkomumest sunnan- og austanlands. Hlýnandi veður, rigning á láglendi um landið sunnanvert og við austurströndina seinnipartinn með hita 1 til 5 stig, en vægt frost fyrir norðan. Talsvert hægari vindur á landinu um kvöldið. Víðtækar samgöngutruflanir eru líklegar, ekkert ferðveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Líkur eru á foktjóni, sérílagi sunnantil á landinu. Fólki er bent á að sýna varkárni til að fyrirbyggja slys og festa lausamuni eins og frekast er kostur. Einnig má búast má við hárri sjávarstöðu vegna áhlaðanda.

Veðurhorfur á landinu
Norðlæg átt 3-10 m/s. Dálítil él norðanlands og stöku él við suðausturströndina, en bjart með köflum á suðvestanverðu landinu. Frost 3 til 13 stig í dag og herðir á frosti í nótt.
Vaxandi austlæg átt á Suður- og Vesturlandi síðdegis á morgun, þykknar upp með éljum við ströndina og dregur úr frosti.
Spá gerð: 12.02.2020 05:52. Gildir til: 13.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað, en stöku él við norðurströndina. Frost 6 til 20 stig, kaldast í innsveitum. Vaxandi suðaustanátt suðvestantil á landinu síðdegis, þykknar upp með éljum við ströndina og dregur úr frosti.
Á föstudag:
Austan stormur, rok eða ofsaveður, hvassast sunnantil á landinu framan af degi. Víða slydda eða snjókoma, úrkomumest sunnan- og austanlands. Hlýnandi veður, rigning á láglendi um landið sunnanvert og við austurströndina undir kvöld með hita 1 til 5 stig, en vægt frost fyrir norðan. Talsvert hægari vindur víðast hvar á landinu um kvöldið.
Á laugardag:
Gengur í allhvassa eða hvassa austanátt með rigningu eða slyddu, einkum sunnan- og austantil á landinu. Hiti 1 til 6 stig síðdegis.
Á sunnudag:
Norðaustlæg átt með rigningu eða slyddu norðan- og austanlands og snjókomu um kvöldið. Úrkomulítið sunnan heiða. Heldur kólnandi.
Á mánudag:
Norðanátt og snjókoma eða él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri um landið sunnan- og vestanvert. Víða vægt frost.
Á þriðjudag:
Suðvestlæg átt með dálitlum éljum, en léttskýjað fyrir norðan og austan. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 11.02.2020 21:25. Gildir til: 18.02.2020 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Brot 529 ökumanna mynduð

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?