Hreinar vaxtatekjur Kviku banka námu alls um 11,9 milljörðum
Hagnaður Kviku banka fyrir skatta nam rúmlega 6,2 milljörðum á árinu 2025 samanborið við rúmlega 5,8 milljarða árið 2025. Það er aukning um 400 milljarða eða alls 6,9%.
Hreinar vaxtatekjur Kviku banka námu alls tæplega 11,9 milljörðum á síðasta ári samanborið við tæplega 9,7 milljarða 2024. Það er 22,9% hækkun um 2.215 milljarða króna.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir í tilkynningu að sala bankans á TM tryggingum hafi skilað mestu fjármunum í sögu félagsins til hluthafa eða samtals 27 milljörðum í formi arðgreiðslna og endurkaupa.
„Eiginfjárstaða við lok árs er engu að síður gríðarlega sterk og hefur bankinn getu til að skila allt að 15 milljörðum króna til hluthafa á árinu 2026 í formi arðgreiðslna eða endurkaupa án þess að raska vaxtarmarkmiðum eða fjárhagslegum styrk félagsins,“ segir Ármann í tilkynningu.
Leggja til arðgreiðslu upp á 1,5 milljarð
Lagt er til að greiddur verði út arður upp á rúmlega einn og hálfan milljarð. Arðgreiðslan nemur 25% af hagnaði samstæðu Kviku eftir skatta sem er sagt í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Stjórn íhugar þá að greiða úr sérstakan arð og mögulega framkvæma frekari endurkaup á eigin bréfum síðar á árinu eða á næsta aðalfundi bankans.
Arion og Kvika ræða áfram um sameiningu
Stjórnir félaganna Arion banka og Kviku banka samþykktu í fyrra að ganga til samrunaviðræðna og segir í tilkynningunni að forviðræður við Samkeppniseftirlitið standi nú yfir. Verði niðurstaða þeirra jákvæð verði formlegt erindi sent eftirlitinu.
Í tilkynningu Kviku segir að í tilefni af fyrirhuguðum arðgreiðslum hafi Kvika og Arion undirritað viðauka við áformabréf um samruna félaganna frá því í fyrra. Þar er gert ráð fyrir að skiptihlutföll verði aðlöguð í samrunanum til samræmis við arðgreiðslurnar svo forsendur hans raskist ekki.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir samrunaferlið hafa dregist lengur en bankinn hefði óskað en að viðræður við samkeppnisyfirvöld haldi áfram og miði ágætlega.

