,,Það má segja að í dag og á morgun komi tvær heiðarlegar haustlægðir til okkar með hvassviðri eða stormi, rigningu og mildu veðri.“ Segir veðurfræðingur.
,,Langt suður í hafi er 980 mb lægð sem stefnir óðfluga norður og af hennar völdum bætir í vindinn hjá okkur. Seinni partinn er útlit fyrir suðaustan hvassviðri eða storm, hvassast SV-lands, en heldur hægari vindur fyrir norðan. Hviður undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar geta farið yfir 30 m/s. Með lægðinni fylgir talsverð rigning SA-lands, rigning með köflum um landið vestanvert fyrir hádegi og áfram að mestu bjart fyrir norðan. Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi og á Miðhálendinu.
Í dag og á morgun er útlit fyrir milt veður eða jafnvel upp í 15 eða 16 stiga hita fyrir norðan og stefnir í að Skagafjörður verði hlýjasti staðurinn þó að ekki sé á vísan að róa með það.
Næstu nótt dregur úr vindinum, en það er skammgóður vermir þar sem bætir aftur í suðaustanáttina á morgun og verður vindurinn ennþá öflugri en í dag. Annað kvöld stefnir í 18-25 m/s á S- og SV-verðu landinu. Áfram verður talsverð rigning á SA-verðu landinu, væta með köflum V-lands og þurrt fyrir norðan.“
Suðurland – Suðaustan hvassviðri eða stormur. (Gult ástand)
Talsverð rigning. (Gult ástand)
Faxaflói – Suðaustan stormur. (Gult ástand)
Breiðafjörður – Suðaustan stormur. (Gult ástand)
Suðausturland – Suðaustan stormur. (Gult ástand)
Miðhálendið – Suðaustan stormur eða rok. (Gult ástand)
Veðurhorfur á landinu
Vaxandi suðaustlæg átt, 10-23 m/s seinni partinn, hvassast SV-til. Rigning SA-lands og væta með köflum um landið V-vert í fyrstu, en víða bjartviðri fyrir norðan. Hiti 7 til 14 stig yfir daginn. Hægari vindur í nótt.
Aftur vaxandi suðaustanátt á morgun, 18-25 m/s annað kvöld, en hægari fyrir norðan. Talsverð rigning S- og SA-til, annars úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 12.04.2019 04:11. Gildir til: 13.04.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag (pálmasunnudagur):
Minnkandi suðlæg átt, 8-15 m/s seinnipartinn. Rigning um landið S-vert, talsverð SA-til, en þurrt fyrir norðan. Hiti 6 til 12 stig.
Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag (skírdagur):
Suðlægar áttir og rigning með köflum, en að mestu þurrt norðanlands. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast fyrir norðan.
Spá gerð: 12.04.2019 08:13. Gildir til: 19.04.2019 12:00.