Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki styðja frjálsa fréttamiðla – Ríkisstjórnin sundruð og engin samstaða
Kolbeinn Óttarsson Proppé varaformaður Vinstri grænna sem ráða yfir forsætisráðuneytinu í ríkisstjón Íslands, vill að gripið verði tafarlaust til sérstækra aðgerða fyrir fjölmiðla. Bent hefur verið á af mörgum ritstjórum einkareknu miðlanna að ríkisstjórnin virðist vera algerlega sundruð í afstöðu sinni til fjölmiðla. Og þar lúti Vinstri grænir og Framsókn í lægra haldi fyrir Sjálfstæðisflokknum sem standi algerlega í vegi fyrir vilja hinna flokkana til að aðstoða einkarekna og frjálsa fjölmiðla.
,,Ég tel mikilvægt að styðja fjölmiðla beint og strax í þeirri stöðu sem uppi er núna. Frumvarp um styrki til einkarekinna fjölmiðla er í eðlilegum farvegi í þingnefnd. Þar er ýmsum álitamálum ósvarað, sem þörf er á að leysa úr til að koma á framtíðarfyrikomulagi varðandi styrki til fjölmiðla. Það tekur á undirliggjandi vanda sem hefur verið að safnast upp síðustu ár vegna breytinga í umhverfi fjölmiðla.
Vandi þeirra er hins vegar bráður, vegna ástandsins nú, og þörf er á sértækum og skjótvirkum aðgerðum strax. Fyrir mér er þetta því tvíþætt; annars vegar einskiptis stuðningur vegna ástandsins nú, þar sem tekjur hafa dregist saman eða horfið, og hins vegar framtíðarfyrirkomulag þannig að við styðjum einkarekna fjölmiðla eins og nágrannaþjóðir okkar. Vandinn er brýnn og mikilvægi fjölmiðla sjaldan meira en nú.“ Segir Kolbeinn Óttarsson Proppé varaformaður Vinstri grænna.
Fjölmiðlafrumvarp Framsóknarflokksins situr ennþá fast í nefnd hjá nefndarformanni Sjálfstæðisflokksins og nú hamlar Sjálfstæðisflokkurinn einnig vilja Vinstri grænna, sem þó eru titlaðir í forsæti ríkisstjórnarinnar. Til að styrkja frjálsa fréttamiðla sem gegna mjög mikilvægu hlutverki í miðjum heimsfaraldri. Fréttamiðla sem hafa á sama tíma misst nánast allar sínar tekjur en bera sömu gjöld og áður. Vilji virðist vera hjá samstarfsflokkum Sjálfstæðisflokksins til að drífa málið í gegn en það hefur ekkert að segja á meðan þeir virðast engu ráða.