• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. apríl 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum neðan þjóðvegar. Áætlun viðbragðsaðila sem gæti breyst án fyrirvara:

Mánudagur:

Í dag verður gossvæðið vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 til kl. 24. Lokað verður inn á svæðið kl. 21. Rýming hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti.

Spá veðurvaktar um veður og gasdreifingu:

Austan og suðaustan 10-15 m/s á gosstöðvunum fram á nótt, en síðan 8-13 m/s. Suðaustan 5-10 seint í kvöld. Lítilsháttar rigning eða slydda öðru hvoru. Hiti 0 tli 5 stig.

Gasmengun berst líklega yfir vestanverðan Reykjanesskaga, þ.e. yfir svæðið frá Vogum og vestur að Höfnum. Á þessu svæði eru líkur á að loftgæði verði óholl fyrir viðkvæma. Austan og Suðaustan 5-10 seint í kvöld. Lítilsháttar rigning eða slydda öðru hvoru. Hiti 0 til 5 stig.

Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir kl. 12 í dag hafi það í huga að takmarkað eftirlit viðbragðsaðila er á svæðinu. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á Facebook síðu lögreglu og á vedur.is, heimasíðu Veðurstofu Íslands.

Svæðið er ekki fyrir lítil börn, þau eru viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því útsett fyrir skaðlegum lofttegundum. Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera.

Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.
· Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
· Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
· Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
· Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.

 

Umræða
Share10Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Setja pólitíska hagsmuni sína í fyrsta sæti

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    114 deilingar
    Share 46 Tweet 29
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?