Héraðssaksóknari hefur ákært nuddara fyrir nauðgun sem samkvæmt ákæru átti að eiga sér stað 5. og 6. janúar árið 2021. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án hennar samþykkis.
Kemur fram í ákærunni að maðurinn hafi kysst bak konunnar, nuddað hana á milli rasskinna, nuddað kynfæri hennar utan klæða og svo sett fingur inn í leggöng hennar, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk. Segir jafnframt að maðurinn hafi beitt ólögmætri nauðung með því að misnota sér það traust sem konan bar til hans.
Auk þess sem farið er fram á að maðurinn verði dæmdur til refsingar þá fer konan fram á eina milljón í einkaréttarkröfu. Mbl.is birti fyrst frétt af málinu á vef sínum.
Um er að ræða mál af svipuðum toga og þegar sem nuddarinn Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson var dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisofbeldi á nuddstofu sinni. Hefur mbl.is fengið staðfest að ekki sé nú um að ræða mál sem tengist Jóhannesi Tryggva.