• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Seðlar

Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

Raunverulega ástæðan fyrir því að bankar vilja ekki reiðufé

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. maí 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Á undanförnum árum hefur tæknin gjörbylt ýmsum geirum samfélagsins – Fíkniefnasalar stunda viðskipti án eftirlits stjórnvalda

Fréttatíminn ræddi við fíkniefnasala um viðskiptin á Íslandi og að hans sögn eru þau mjög blómleg og ganga mjög vel.

,,Ég er búinn að vera í þessum bransa mjög lengi og alltaf sloppið undan lögreglunni og tollinum.

Aðal málið er að fara varlega og taka enga áhættu, ég flyt efnin inn i gegnum gamalt innflutningsfyrirtæki sem selur húsbúnað, það er ekki mikið verslað við fyrirtækið og nánast aldrei bílar fyrir utan né viðskiptavinir inni. Enda er þetta bara yfirvarp og þegar hrunið var á sínum tíma skipti það engu máli þó engir viðskiptavinir væru til staðar. Reksturinn var eiginlega sá eini sem ekki fór á hausinn á meðan sambærileg fyrirtæki hrundu í hruninu. Fólk þarf efnin sín alveg sama hvernig staðan er í þjóðfélaginu og maður veit hverjum maður þarf að múta svo allt gangi smurt.

Ég hlæ að bönkunum og lána á betri kjörum

Ég hlæ að bönkunum sem neita að taka á móti reiðufé og segja að það sé til að sporna við glæpastarfsemi. Við sáum það í hruninu hverjir eru mestu glæpamennirnir í fjármálaheiminum en það eru einmitt bankamenn og liðið í sjóðakerfunum sem notar bankareikninga og bókhaldsbrellur. Það eru raunverulegu glæpamennirnir á Íslandi og þeir eiga hundruði milljarða á aflandseyjum sem enginn af öllum þessum skara hjá saksóknara nennti að elta. Þessir menn eru núna á fullu að þvo milljarðana og kaupa óteljandi fyrirtæki og byggja heilu hverfin með þeim og enginn gerir neitt í neinu. Kerfið er ónýtt!

Ég skipti peningum í Evrur og hef endalausan aðgang að gjaldeyri og fer aldrei í banka. Fíkniefnasalar nota ekki banka og stærri viðskipti fara í gegnum Bitcoin. Bankarnir eru bara að bulla eins og alltaf, þegar þeir segja að reiðufé sé hættulegt, þeir ættu að vita það lang best sjálfir að það eru bara alvöru glæpamenn sem nota ekki reiðufé. Mér skilst að seðlar séu aðallega notaðir í umslög í barnaafmælum hjá börnum undir fermingaraldri. Bankarnir ljúga að fávísum lýðnum.

Raunverulega ástæðan fyrir því að bankar vilja ekki reiðufé

Raunverulega ástæðan fyrir því að bankar vilja ekki reiðufé er að þeir vilja ráða yfir peningum fólksins í landinu og hafa á sínum eigin reikningum til að braska með og hirða vexti af lýðnum. Þeir græða hundurði milljarða á að braska með peningana okkar með okurvöxtum á meðan maður fær enga vexti á móti. Ég er að lána peninga á lægri vöxtum en bankarnir og það er ekkert bull eins og Creditinfo eða greiðslumat eins og bankarnir nota til að finna bestu bankaþrælana.

Nálgun án náveru

Í hefðbundnum fíkniefnaviðskiptum þurfa kaupendur og seljendur oft að hittast augliti til auglitis, sem felur í sér áhættu beggja vegna. Með tilkomu Bitcoin hafa þessi viðskipti færst yfir á netið – nánar tiltekið á svokallaðan „myrkra vef“, þar sem sala á vímuefnum, vopnum og fölsuðum skjölum þrífst.

Notkun Bitcoin gerir sölum kleift að taka við greiðslum með nafnleynd, án aðkomu banka eða eftirlitsaðila. Þó að allar færslur séu skráðar í svokallaða „blockchain“-keðju, sem er opinber og rekjanleg, eru eigendur veska (wallets) oft nafnlausir – sérstaklega þegar þeir beita dulkóðun, netumgengni í gegnum Tor og nota „VPN þjónustu“  til að fela uppruna og áfangastað fjármagnsins.

Þjónusta og afhending

Salan fer þannig fram að kaupandi fer inn á vefsvæði á myrkra vefnum, velur sér vöru, greiðir í gegnum Bitcoin-veski og fær sendinguna með pósti – oft vel falda í venjulegum umbúðum. Þetta hefur gert lögreglu og tollgæslu erfiðara fyrir við að rekja uppruna og dreifileiðir fíkniefna.

Milljónir evra flæða í gegnum þessi kerfi árlega og stór hluti þess tengist ólöglegum efnum. Þó Bitcoin sé gjarnan notað, eru einnig önnur rafmyntarkerfi, eins og Monero og Zcash, sem bjóða upp á enn meiri nafnleynd. Þau eru í auknu mæli notuð í undirheimaviðskiptum. “

Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

Umræða
Share78Tweet49
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Níu handteknir vegna innflutnings á kókaíni

    Lögreglan rannsakar alvarlegt atvik á hóteli – Einni hæð hót­els­ins lokað af sér­sveitinni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Húsleit í miðborginni

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Látinn eftir stórfellda líkamsárás

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Andlegu málin með Gísla Hvanndal: Katrín Lind Hönnudóttir miðill og heilari

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?