• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 22. ágúst 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fyrstu langtímasamningarnir um liðskiptaaðgerðir og fleiri skurðaðgerðir

Frá vinstri: Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klínikunnar, Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúlkratrygginga, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hannes Sigurjónsson, læknir hjá Læknahúsinu DEA Medica, og Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stoðkerfa.

Fyrstu langtímasamningarnir um liðskiptaaðgerðir og fleiri skurðaðgerðir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
12. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sjúkratryggingar Íslands, Klíníkin Ármúla ehf. og Stoðkerfi ehf. í samstarfi við Læknahúsið DEA Medica hafa gert með sér samning um framkvæmd liðskipta-, bak-, kviðsjár-, og brjóstaminnkunaraðgerða með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga til næstu þriggja ára.

Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og forsvarsmenn þjónustuveitenda staðfestu samninginn í höfuðstöðvum SÍ í dag. Bætt aðgengi sjúklinga að nauðsynlegri þjónustu, skýrari umgjörð hennar og stytting biðlista eru helstu markmið samningsins.
„Ég tel þetta góða og skynsamlega samninga þar sem hagsmunir sjúklinganna, gæði þjónustunnar, skilvirkni og hagkvæmni eru í fyrirrúmi. Þetta eru jafnframt fyrstu heildstæðu langtímasamningarnir um þessa þjónustu. Það skapar sjúklingum og þjónustuveitendum aukinn fyrirsjáanleika sem er ótvíræður hagur beggja. Fyrst og síðast er markmiðið að stytta biðlista og þar með bið sjúklinga eftir þessum mikilvægu og lífsbætandi aðgerðum“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra: „Þá munum við, í tengslum við þennan samning, leggja áherslu á að einfalda kerfið, auka skilvirkni og tryggja jafnræði gagnvart sjúklingum, m.a. að þeir komist hindrunarlaust inn á miðlægan biðlista þegar faglegt mat sérfræðilæknis liggur fyrir.“

Um 1.000 aðgerðir á ársgrundvelli – unnt að fjölga þeim án samninga

Samningarnir eru gerðir að undangengnu opnu innkaupaferli. Kveðið er á um hvernig fjármagn skiptist hlutfallslega á milli þjónustuveitenda og enn fremur um hlutfallslega skiptingu fjármagns milli aðgerðaflokka samkvæmt viðmiðum SÍ sem endurskoðuð eru árlega. Miðað við fyrirliggjandi fjármagn tryggja samningarnir um 1.000 aðgerðir á ársgrundvelli, þar af um 600 liðskiptaaðgerðir, um 170 bakaðgerðir, 170 kviðsjáraðgerðir og 60 brjóstaminnkunaraðgerðir. Í samningunum felst sveigjanleiki sem gerir kleift að fjölga aðgerðum innan hvers árs, fáist til þess auknar fjárveitingar, og þarf ekki að semja um það sérstaklega. Eins er hægt að beina auknu fjármagni í tiltekna aðgerðaflokka umfram aðra ef þess gerist þörf.

Sigurður Helgi Helgason forstjóri SÍ segir samningana mikilvæga og fela í sér aukið umfang skurðaðgerða utan heilbrigðisstofnana: „Með þeim er almenningi tryggt bætt aðgengi að brýnni þjónustu, sem mun stytta biðlista og létta álagi af Landspítala og öðrum sjúkrahúsum. Með langtímasamningum tryggjum við meiri stöðugleika og við höfum stigið mikilvæg skref til að treysta gæði og umgjörð þjónustunnar.“

Samningsaðilar skipa með sér samstarfsnefnd sem fjallar m.a. um þjónustuþörf og stöðu biðlista, forgangsröðun, aðgerðatækni og miðlun sjúklinga í aðgerðir. Í samningnum er sérstaklega er kveðið á um að almennt skuli þeir aðilar sem framkvæma aðgerðir á grundvelli samningsins ekki gera aðgerðir af sama tagi án greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Ef brýn nauðsyn krefst getur þjónustuaðili þó sótt um undanþágu til SÍ frá þessu ákvæði sem afgreidd er í ljósi þess hvort undanþágubeiðnin byggi á málefnalegum sjónarmiðum.

  • Frá vinstri: Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klínikunnar, Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúlkratrygginga, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hannes Sigurjónsson, læknir hjá Læknahúsinu DEA Medica, og Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stoðkerfa. - mynd
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vistaður í fangaklefa eftir umferðaróhapp

    Kona á fertugsaldri í gæsluvarðhaldi

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Veginum að Látrabjargi verði lokað – Almyrkvi 2026

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Veðrið á Menningarnótt – Lægð suður af Hvarfi

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Ungur drengur lést úr malaríu á Landspítalanum

    165 deilingar
    Share 66 Tweet 41
  • Hótel Vogur á Fellsströnd – vel búið sveitahótel á friðsælum stað

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?