Hugleiðingar veðurfræðings
Lægðir eru á sveimi í kringum Ísland í dag. Áttin er áfram norðaustlæg, strekkingur á Vestfjörðum en annars hægari. Dálítil rigning eða súld með köflum fyrripart dags, en rigning seinnipartinn fyrir norðan. Sunnan heiða verður úrkomulítið í dag og lengst af bjart suðvestanlands, þar getur hiti farið í 16 stig.
Í kvöld hvessir á Vestfjörðum, þar verður norðaustan hvassviðri í nótt. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Norðaustlæg átt á morgun, 8-15 en hægari fyrir austan. Víða rigning eða skúrir. Hiti 7 til 14 stig, en heldur svalara á Vestfjörðum. Spá gerð: 12.09.2025 06:14. Gildir til: 13.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 8-13 m/s norðvestantil, annars hægari. Rigning eða súld með köflum, en úrkomulítið sunnan heiða. Bætir í rigningu fyrir norðan síðdegis og hvessir á Vestfjörðum í kvöld. Hiti 8 til 16 stig, mildast suðvestanlands. Norðaustan 8-15 á morgun og víða rigning eða skúrir, en hægari um landið austanvert. Kólnar norðvestantil. Spá gerð: 12.09.2025 09:54. Gildir til: 14.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Suðaustan og austan 5-13 m/s, en norðlægari á Vestfjörðum fram eftir degi, hvassast við suður- og norðurströndina. Rigning, en úrkomuminna norðaustantil. Hiti 8 til 15 stig.
Á mánudag:
Norðaustlæg átt, 3-10 m/s, hvassast suðaustanlands. Skýjað og smá súld austanlands, en annars að mestu bjart. Hiti 7 til 14 stig, hlýast á Suður- og Vesturlandi.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Norðaustlæg átt, skýjað og dálítil væta af og til í öllum landshlutum. Kólnar smám saman í veðri.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir austlæga átt og rigningu syðst, annars að mestu skýjað en úrkomulítið. Hiti 4 til 10 stig.
Spá gerð: 12.09.2025 08:16. Gildir til: 19.09.2025 12:00.

