Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra og Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins-headspace undirrituðu í dag styrktarsamning sem kveður á um 20 milljóna króna fjárframlag ráðuneytanna til að styðja við starfsemi Bergsins. Hvort ráðuneyti um sig leggur til 10 milljónir króna. Samningurinn gildir til loka þessa árs.
Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu við ungmenni á aldrinum 12 til 25 ára. Markmiðið er að stuðla að bættri líðan, efla þátttöku og þekkingu ungmenna og virkni þeirra í samfélaginu. Meginmarkmið samningsins er að styðja við starfsemi Bergsins og mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu fyrir þennan aldurshóp. Ráðgjafar Bergsins aðstoða ungt fólk sem t.d. glímir við áhyggjur, depurð, erfiðar tilfinningar, sjálfskaða eða sjálfsvígshugsanir, hafa orðið fyrir ofbeldi eða öðrum áföllum.
Alma D. Möller: „Bergið hefur sýnt og sannað að það er mikilvægt afl í samfélaginu í þágu ungs fólks. Lágþröskuldaþjónusta eins og hér um ræðir skiptir miklu máli fyrir börn og ungt fólk, þar sem er einfalt að leita eftir þjónustu og fá samtal við ráðgjafa með litlum fyrirvara þegar lífið er erfitt“.
Guðmundur Ingi Kristinsson: „Grípa þarf ungmenni þegar þau lenda í vanda og hafa fjölbreytt og aðgengileg úrræði til þess. Bergið er eitt slíkt úrræði sem hefur gefið góða raun. Þetta er viðkvæmur aldurshópur þar sem einstaklingar eru að mótast og getur stuðningur á réttum tíma skipt sköpum í að byggja upp sterka einstaklinga og fyrirbyggja stærri vanda síðar meir“.
Eva Rós Ólafsdóttir: „Velvilji og stuðningur beggja ráðuneyta er okkur mikil hvatning og staðfestir mikilvægi þess að tryggja áframhaldandi aðgengi ungs fólks að þjónustu Bergsins“.
