• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þarf 26 lífeyrissjóði fyrir 340 þúsund manna þjóð – Er eðlilegt að lífeyrissjóðir launafólks eigi 52% í félögum í kauphöllinni?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. janúar 2019
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

,,Hvað kostar það neytendur hér á landi að inni í íslensku hagkerfi séu 3200 milljarðar frá lífeyrissjóðunum?“

      Vilhjálmur Birgisson, skrifar um lífeyrissjóði

Ég tel fulla þörf á að fengnir verði erlendir óháðir aðilar til að taka út íslenska lífeyriskerfið og í þeirri úttekt verði kallað eftir kostum og göllum kerfisins. Það er alla vega morgunljóst að það er ekki möguleiki á að finna hlutlausa aðila hér á landi í slíkt verkefni, enda teygir lífeyrissjóðskerfið sig eins og kolkrabbi inní nánast allt atvinnulífið.
Nú liggur fyrir að helstu talsmenn lífeyriskerfisins hafa ætíð sagt að íslenska lífeyriskerfið sé eitt af því besta í heimi, er því þjóðráð að fá alvöru erlenda óháða aðila til að kanna hvort slíkar staðhæfingar eigi við rök að styðjast eða ekki?

Ég vil að þessir erlendu óháðu aðilar svari t.d. þessum spurningum:

• Þarf 26 lífeyrissjóði fyrir 340 þúsund manna þjóð?
• Er það eðlilegt að lífeyrissjóðir launafólks eigi um 52% í skráðum félögum í kauphöllinni?
• Hvað kostar það neytendur hér á landi að inni í íslensku hagkerfi séu 3200 milljarðar frá lífeyrissjóðunum?
• Hvaða áhrif hefur 3,5% ávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna á vaxtakjör á Íslandi?
• Hvaða áhrif hefur aðkoma lífeyrissjóðanna á samkeppni í ljósi þess að þeir eru með ráðandi hlutdeild í öllum helstu atvinnugreinum á Íslandi?
Ég alla vega tel fulla þörf á að fá erlenda aðila til að gera úttekt á íslenska lífeyriskerfinu, en ég hef sterka trú á að lífeyriskerfið valdi því að vöruverði er haldið hátt uppi og kaupgjaldi launafólks niðri, allt til þess að hægt sé að greiða botnlausar arðgreiðslur til sjóðanna.
Það er rétt að vitna í ræðu á morgunverðarfundi um lífeyrissjóði og íslenskt atvinnulíf hinn 15. nóvember 2013 en þar sagði Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins m.a þetta:
„Það er óæskilegt í samkeppnislegu tilliti að lífeyrissjóðir syndi allir sama hringinn í litlu tjörninni.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?