Félag áhugamanna í skák hyggjast halda upp á 90 ára afmæli Friðriks Ólafssonar og hyggjast bjóða Magnus Carlsen til landsins af því tilefni:
,,Í tilefni 75 ára afmælis Bent Larsen efndi danska skáksambandið til sérstaks skákviðburðar dagana 2. – 5. ágúst árið 2010, en Larsen varð 75 ára þann 4. mars sama ár.
Sterkasti skákmaður Dana um þær mundir, Peter Heine Nielsen, tefldi hraðskákeinvígi við Peter Svidler sem var ógnarsterkur á þeim tíma. Fyrstu tvo dagana (2. – 3. ágúst) háðu þeir rapid-einvígi (20 mín. + 10 sek. á leik) sem lyktaði 4,5 – 1,5 Svidler í vil.
Seinni tvo dagana (4. – 5. ágúst) tefldu þeir hraðaskákeinvígi með tímamörkunum 4+2.
Fyrri daginn hófust allar skákir á 1. b3 til að heiðra þá byrjun sem við Larsen er kennd. Sá hluti einvígisins endaði 7 – 3 fyrir Svidler.
Seinni dagur hraðskákanna var með hefðbundnu sniði (4+2). Eftir æsispennandi baráttu tókst Svidler að jafna metin í síðustu skák og endaði viðureignin 5-5.
Nú verður Friðrik Ólafsson – okkar skærasta skákstjarna – 90 ára þann 26. janúar á þessu ári. Það er oft og iðulega talað um að við eigum að bera okkur saman við aðrar Norðurlandaþjóðir, ekki síst Dani. Mér finnst til fyrirmyndar hvernig danska skáksambandið stóð að málum þegar það heiðraði Bent Larsen á 75 ára afmælisárinu. Þess vegna legg ég til að Skáksambandið feti inn á svipaða braut og heiðri Friðrik Ólafsson með hliðstæðum hætti á 90 ára afmælisárinu
Nú er Magnús Carlsen nýkvæntur og flugið frá Osló til Reykjavíkur (með tilstyrk Icelandair?) er ekki langt. Er ekki tivalið að bjóða þeim hjónum að eyða hluta af hveitibrauðsdögunum hér á Fróni og fá Magnús til að tefla nokkrar rapid/blitz skákir við okkar sterkasta (efnilegasta) mann? Hugmyndinni (eða annarri hliðstæðri hugmynd) er hér með komið á framfæri.“ Segir á facebook síðu skákáhugamanna.