• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Svona viðhalda sjóðirnir stefnu þekktra fjárglæframanna“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. febrúar 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Almenningur verður að ná fullri stjórn yfir lífeyrissjóðunum okkar. Sjóðirnir hafa setið að mestu hjá, sem óvirkir meirihlutaeigendur stærstu fyrirtækja á markaði, fyrir tilstuðlan atvinnulífsins, og verja þannig gengdarlausa spillingu og sjálftöku í viðskiptalífinu og fjármálakerfinu sem einkennist af botnlausri græðgi og ört hækkandi arðsemiskröfu.

Versta form spillingar er að vita af henni og aðhafast ekki
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR skrifar um sjóðakerfið

Lífeyrissjóðirnir hafa setið hjá þegar hvert fyrirtækið á fætur öðru er skrælt að innan. Þetta er gert með því að veita frekum minnihlutaeigendum öll völd í fyrirtækjum í skjóli meirihluta sjóðanna sem lítið skipta sér af. Sem lítið en stórt dæmi má nefna Stoðir (áður FL-group) í því samhengi, sem tóku ákvörðun um að selja Mílu, einn mikilvægasta fjarskiptainnvið þjóðarinnar, úr Símanum. Og skilja Símann eftir sem skel af félagi með áratuga skuldbindingar á bakinu til að greiða kaupverðið/söluna upp. Engin leið er að sjá fyrir hvort dæmið gangi upp.

Stoðir (áður FL-group) hlaupa svo frá borði með fúlgur fjár í næsta snúning. Lífeyrissjóðirnir fá arðgreiðslur líka en sitja uppi með alla áhættuna.
Framganga Stoða (áður FL-group) teygjir sig víða og nú inn í fjármálakerfið, með sameiningardaðri Kviku og Íslandsbanka, en lífeyrissjóðirnir eru þar stórir eigendur.
Gríðarlegar arðgreiðslur og hækkandi arðsemiskrafa hjá Arion banka, en Stoðir (áður FL-group) er stærsti eigandi í Arion með 5,2% á eftir lífeyrissjóðum sem eiga samanlagt minnst 46,3%.
Svona viðhalda sjóðirnir stefnu þekktra fjárglæframanna um háa arðsemiskröfu, skammtímagróða og áhættusækni, alveg sama hvaða áhrif það kunni að hafa á lífskjör almennings og sjóðfélaga til skemmri eða lengri tíma litið.
Hagsmunir sjóðfélaga, sem eru allir þeir sem einhverntíma hafa greitt í lífeyrissjóð, snúast ekki eingöngu um fleiri krónur í launaumslagið eftir að vinnuskyldu líkur. Heldur um lífskjör okkar á meðan við lifum.
Þannig eru það hagsmunir sjóðfélaga að lækka kostnað við að lifa, að vinna gegn spillingu og græðgi, að veita peningaöflunum aðhald og skapa gegnsæi og stilla arðsemi í hóf. Sýna raunverulega samfélagslega ábyrgð.
Það er ekki mikill metnaður í því að lifa sem þræll alla starfsævina til að hafa það, hugmyndafræðilega, gott á efri árum.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?