• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Verðlag oftast nefnt sem vandamál á matvörumarkaði, farþegaþjónustu og lyfjamarkaði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. júní 2019
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

 

Íslenskur almenningur er meðvitaður um mikilvægi virkrar samkeppni

,, Íslendingar verða mest varir við samkeppnisvandamál í farþegaþjónustu (42%), fjármálaþjónustu (33%) og á matvörumarkaði (24%). “
Dagana 30. apríl til 3. maí 2019 framkvæmdi MMR könnun, að beiðni Samkeppniseftirlitsins, um viðhorf almennings til samkeppnisstefnu stjórnvalda og samkeppni í tilteknum atvinnugeirum. Könnunin er sambærileg könnun sem framkvæmdastjórn ESB lét framkvæma í öllum aðildarríkjum sínum. Gefur hún því færi á samanburði við viðhorf almennings í aðildarríkjum ESB.
Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að íslenskir neytendur séu mjög meðvitaðir um mikilvægi virkrar samkeppni og samkeppniseftirlits.
Meginniðurstöður könnunarinnar eru eftirfarandi:
• 97% svarenda telja virka samkeppni hafa jákvæð áhrif á sig sem neytendur. Þetta er hærra hlutfall en í nokkru ESB-landanna og afgerandi hærra en að meðaltali í ESB ríkjunum, en þar svöruðu 83% því til að virk samkeppni hefði jákvæð áhrif á sig sem neytendur.
• Íslendingar verða mest varir við samkeppnisvandamál í farþegaþjónustu (42%), fjármálaþjónustu (33%) og á matvörumarkaði (24%). Í könnun ESB nefna hins vegar flestir síma- og netþjónustu (27%), orkumarkað og lyfjamarkað.
• Um 8 af hverjum 10 hafa heyrt um ákvörðun sem tekin hefur verið af samkeppnisyfirvöldum og nær allir nefna Samkeppniseftirlitið í því samhengi. Í könnun ESB höfðu 5 af hverjum 10 heyrt um ákvörðun samkeppnisyfirvalda.
Bakgrunnsupplýsingar:
Könnuninni svaraði 941 einstaklingur og voru niðurstöðurnar vigtaðar með tilliti til aldurs, kyns, búsetu og menntunar. Í könnuninni var spurt um viðhorf almennings til eftirfarandi þátta:
• Áhrifa samkeppni á neytendur og efnahagslífið.
• Persónulegrar reynslu af vandamálum vegna skorts á samkeppni, flokkað eftir geirum og birtingarmynd vandamálanna. Nánar tiltekið var spurt um samkeppni í síma- og internetþjónustu, farþegaþjónustu, dagvörusölu, fjármálaþjónustu, lyfjamarkaði og orkumarkaði.
• Þekkingar á samkeppnismálum (s.s. samráði eða samrunum fyrirtækja) og hvar hennar var aflað.
• Þekkingar á ákvörðunum sem teknar eru í tengslum við vandamál tengd samkeppni og hvaða yfirvöld taka þær.
• Hvert almenningur leiti ef hann verður áskynja um samkeppnisvandamál.
Nánari upplýsingar um könnunina og samanburð við sambærilega könnun sem framkvæmdastjórn ESB framkvæmdi í janúar sl. má finna í riti Samkeppniseftirlitsins nr. 1/2019, Viðhorf almennings til samkeppnismála.
Meginniðurstöður, ítarleg upptalning
Nær allir svarendur telja virka samkeppni hafa góð áhrif á sig sem neytendur
 97% svarenda telja virka samkeppni hafa jákvæð áhrif á sig sem neytendur. Þetta er
hærra hlutfall en í nokkru ESB-landanna og afgerandi hærra en að meðaltali í ESB
ríkjunum, en þar svöruðu 83% því til að virk samkeppni hefði jákvæð áhrif á sig sem
neytendur.
Mikill meirihluti telur samkeppni hafa jákvæð áhrif á verð, gæði, nýsköpun og
samkeppnishæfni fyrirtækja á alþjóðlegum markaði
 84-88% svarenda eru sammála því að samkeppni stuðli að betra verði, úrvali og
gæðum vara og þjónustu fyrir neytendur. Þetta er ívið hærra hlutfall en að meðaltali í
könnun ESB, en þar voru 76-88% sammála fyrrgreindum fullyrðingum.
 87% svarenda eru sammála því að samkeppni á milli fyrirtækja örvi nýsköpun og
hagvöxt. Sama hlutfall svarenda í könnun ESB voru sammála fullyrðingunni.
 89% eru sammála því að samkeppni hjálpi evrópskum fyrirtækjum að verða
samkeppnishæfari á alþjóðlegum markaði. Ívið lægra hlutfall svarenda (að meðaltali)
í könnun ESB voru sammála fyrrgreindri fullyrðingu, eða um 81%.
Íslendingar verða mest varir við samkeppnisvandamál í farþegaþjónustu,
fjármálaþjónustu og á matvörumarkaði. Í könnun ESB nefna hins vegar flestir símaog netþjónustu, orkumarkað og lyfjamarkað.
 Flestir svarendur, eða um 42%, nefndu farþegaþjónustu2 sem þann geira þar sem
viðkomandi höfðu upplifað vandamál sökum skorts á samkeppni. Næstflestir, eða um
33%, nefndu fjármálaþjónustu3 og þar á eftir matvörumarkað, eða um 24%.4
 Í könnun ESB nefndu flestir síma- og netþjónustu (27%), næstflestir orkumarkað
(20%) og þar í kjölfarið lyfjamarkað (17%).
Hátt verð og lítill verðmunur er oftast nefndur þegar spurt er hver séu helstu
vandamálin á viðkomandi mörkuðum:
 Hátt verð er oftast nefnt þegar spurt er hver séu helstu vandamál á þeim mörkuðum
sem svarendur töldu samkeppni ekki vera næga.
Þannig var verðlag oftast nefnt sem vandamál á matvörumarkaði (64%), farþegaþjónustu (64%) og lyfjamarkaði (52%).
 Lítill marktækur munur á verði fyrir svipaða þjónustu er einnig oft nefndur sem
vandamál. Lítill verðmunur var þannig oftast nefndur af þeim sem töldu skort á
samkeppni í fjármálaþjónustu (65%), auk þess sem þetta var oft nefnt sem vandamál
í síma- og netþjónustu (41%). Í könnun ESB er hátt verð oftast nefnt sem vandamál. Í tilfelli síma- og netþjónustu
nefndu að meðaltali um 70% svarenda verð. Það sama á við um aðra geira sem spurt
var um.
2
S.s. fólksflutningar á landi og flugfélög.
3
S.s. bankar og tryggingafélög.
4
Samtala fyrsta eða annars vals.
3
Samkeppniseftirlitið oftast nefnt þegar spurt er hvert eigi að leita vegna
samkeppnisvandamála
 Sama hlutfall og í könnun ESB svaraði játandi spurningu um hvort viðkomandi vissi
hvert hann ætti að leita með samkeppnisvandamál, eða 44%.
 Af þeim sem svöruðu nefndu 74% að leita ætti til Samkeppniseftirlitsins vegna
samkeppnisvandamála.
Hér munar talsverðu á svörum í könnun ESB en þar nefndu
að meðaltali 45% samkeppnisyfirvald í viðkomandi landi. Næst komu
Neytendasamtökin með 71%, eða svipað hlutfall og í Evrópu. Þá nefndu 4%
Eftirlitsstofnun EFTA (samanborið við 10% sem nefndu framkvæmdastjórn ESB) og
9% aðrar eftirlitsstofnanir (samanborið við 34% í ESB-könnuninni).
Um 7 af hverjum 10 hafa heyrt eða lesið um samkeppnismál á sl. 12 mánuðum,
samanborið við 4 af hverjum 10 í könnun ESB
 68% svarenda höfðu heyrt eða lesið um samkeppnismál (s.s. samráð fyrirtækja,
samruna eða misnotkun á markaðsráðandi stöðu) á sl. 12 mánuðum. Þetta er
umtalsvert hærra hlutfall en í könnun ESB en þar höfðu að meðaltali 41% svarenda
heyrt eða lesið um samkeppnismál.
 Flestir höfðu heyrt eða lesið um þessi mál í dagblaði eða tímariti (prent- eða
vefútgáfu), eða um 72%, 51% í sjónvarpi, 39% í útvarpi og 34% á samfélagsmiðlum.
Um 8 af hverjum 10 hafa heyrt um ákvörðun sem tekin hefur verið af
samkeppnisyfirvöldum, samanborið við 5 af hverjum 10 í könnun ESB
 79% svarenda höfðu heyrt um ákvörðun sem hafði verið tekin af
samkeppnisyfirvöldum. Er hér um að ræða hærra hlutfall en að meðaltali í ríkjum ESB
en þar höfðu um 50% svarenda heyrt um slíka ákvörðun.
Nær allir nefndu Samkeppniseftirlitið sem ákvörðunaraðila
 97% af þeim sem höfðu heyrt um ákvarðanir samkeppnisyfirvalda nefndu
Samkeppniseftirlitið sem ákvörðunaraðila. Um 20% nefndu Eftirlitsstofnun EFTA og
5% framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Í ríkjum ESB nefndu að meðaltali mun
fleiri framkvæmdastjórn ESB, eða 47%, og töluvert lægra hlutfall nefndi
samkeppnisyfirvöld í aðildarríkjum, eða um 68% í samanburði við 97% hér á landi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?