Í ár eru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar hvattir til að fagna þjóðhátíðardegi með óvenjulegum og öðruvísi hætti. Hafnarfjarðarbær mun í ljósi þeirra takmarkana sem í gangi hafa verið síðustu vikur og mánuði ekki blása til sameiginlegrar hátíðar eins og venjan er heldur hvetja íbúa til að halda sína eigin heimahátíð. Sveitarfélagið leggur þó sitthvað af mörkum til hátíðarhaldanna og mun bjóða upp á óvæntar en ótímasettar uppákomur víða um bæinn.
Málum Hafnarfjörð í fánalitunum
Þjóðhátíðardegi verður fagnað á óvenjulegan og öðruvísi máta í Hafnarfirði í ár og þá ekki síst í ljósi þess að landinn býr enn við takmarkanir og ríkur vilji fyrir því að vera áfram til fyrirmyndar í forvörnum og almannavörnum. Þannig eru íbúar hvattir til að grilla í garðinum heima og skemmta sér innanbæjar. Fastir liðir eins og fánahylling og heimsóknir á heimili og sjúkrastofnanir með flutning á íslenskum dægurperlur munu halda sér auk þess sem söguskilti við Fríkirkjuna á Austurgötu verður opnað. Íbúar eru einnig sjálfir hvattir til að skjóta upp fána, flagga eða setja fána í næsta glugga eða blómapott. Heppnir íbúar munu einnig upplifa óvæntar uppákomur víða um bæinn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Listahópur Vinnuskólans, álfar og ævintýrapersónur munu troða upp og skemmta þeim sem á vegi þeirra verða. Opið verður á söfnum og í sundlaugum sveitarfélagsins og er sem fyrr frítt inn á öll söfn og frítt í sund fyrir 17. ára og yngri. Ísbíllinn verður á ferð um hverfin og muni ís verði í boði fyrir börnin.
Heilsueflandi hugmyndir að skemmtun á heimavelli
- Hlustum á hljóðið
- Hækkum í tónlistinni, syngjum og dönsum
- Óvæntar uppákomur víða um bæinn
- Förum í sund eða á safn
- Buslum í Hvaleyrarvatni
- Göngum á slóðir Ratleiks Hafnarfjarðar
- Dorgum við höfnina
- Hoppum á Óla Run túni
- Leikum á Víðistaðatúni
- Förum í lautarferð í Hellisgerði
Nánar á hafnarfjordur.is