Eldur er kominn upp í íbúðarhúsi á Amtmannsstíg upp úr klukkan átta og var allt tiltækt slökkvilið kallað út. Tveir eru á leið á slysadeild að sögn rúv.is. Ekki er vitað um umfang eldsins að svo stöddu.
Sjúkra- og slökkvibílar lentu í mikilli umferð á leið á vettvang, þar sem margir voru á leið til vinnu.
Slökkvilið er á staðnum og reynir að ráða niðurlögum eldsins.
Umræða