Hér eru nokkur mál úr dagbók lögreglu á tímabilinu 17:00 til 05:00. Þegar þessi póstur er ritaður gista 4 í fangageymslu. Alls eru 131 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes:
- Leigubílstjóri óskar eftir aðstoð lögreglu vegna farþega sem stingur af án þess að greiða, aðili farin af vettvangi þegar lögregla kom.
- Tilkynnt um þjófnað í verslun þar sem grímuklæddir menn komu inn í verslun og tóku dýra muni og hlupu á brott, lögregla fór á vettvang til að rannsaka málið, gerendur farnir af vettvangi.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna umferðaóhapps á bifreiðastæði og það var ágreiningur á milli aðila, lögregla fór á vettvang.
- Tilkynnt um nágrannaerjur þar sem íbúi vann eignaspjöll á hurð annars íbúa, teiknaði hakakross á hurðina, málið í rannsókn hjá lögreglu.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu á Reykjarvíkurflugvöll vegna farþega sem var æstur og ógnandi og undir áhrifum áfengis, lögregla náði lítið að ræða við aðila sökum ölvunar ástands hans og lét ófriðlega, hann vistaður í fangaklefa vegna ölvunar ástands.
- Tilkynnt um tvo aðila spenna upp hurð í fjölbýli og fóru inn í stigahús, lögregla fór á vettvang en aðilar farnir af vettvangi.
- Tilkynnt um aðila vinna eignaspjöll á bifreið í miðbæ Reykjarvíkur, aðili farin af vettvangi þegar lögregla kom á vettvang, málið í rannsókn.
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að aka án gildra ökuréttinda, hann var látin laus að blóðsýnatöku lokinni.
- Tilkynnt um slagsmál í miðbæ Reykjarvíkur, aðilar farnir þegar lögregla kom á vettvang.
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, hann var látin laus að blóðsýnatöku lokinni.
- Tilkynnt um hávaða í heimahúsi, lögregla fór á vettvang og bað húsráðanda um að lækka.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
- Tilkynnt um tvo ölvaða aðila reyna að komast inn í stigahús í fjölbýli, einn þeirra pissaði í horn á stigaganginum en voru farnir af vettvangi þegar lögregla kom.
- Tilkynnt um innbrot og húsbrot þar sem tveir aðilar brutu lyklabox og fóru inn í stigahús, þeir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna rannsókn málsins.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
- Tilkynnt um ungmenni skemma reiðhjól við leikvöll, lögregla ræddi við ungmenni og foreldra.
- Aðili handtekinn fyrir að trufla störf lögreglu, fór ekki eftir fyrirmælum og var beittur varnarúða og neitaði að segja til nafns. Hann var fluttur á lögreglustöð og þrifin af honum varnar úði og látin laus að því loknu.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna umferðaóhapps, eignatjón og annar ökumaður með minni háttar áverka.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, hann var látin laus að blóðsýnatöku lokinni.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna umferðaóhapps þar sem ekið var á barn á hjóli á litlum hraða og barnið var óslasað.
- Tilkynnt um eld í bifreið, lögregla fór ásamt slökkviliði á vettvang, slökkvilið slökkti eldinn og lögregla tók við rannsókn málsins.
- Tilkynnt um samkvæmis hávaða í heimahúsi, lögregla fór á vettvang þá voru enginn læti.
Umræða

