• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 14. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sólveig Anna Jónsdóttir tjáir sig um stefnuræðu Katrínar Jakobsdóttur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. september 2018
in Óflokkað
A A
0

Sólveig Anna Jónsdóttir tjáir sig um stefnuræðu Katrínar Jakobsdóttur


,,Katrín Jakobsdóttir hitti börn sem vildu lækkun á ís og gamalt fólk sem gladdist með henni yfir fullveldinu. Ég vil ekki gera lítið úr henni, börnunum eða gleðinni yfir fullveldinu, alls ekki, en mig langar samt að segja þetta:
Ég hitti konur sem leigja bílskúr fyrir 150.000 krónur á mánuði, sem vinna burtu sumarfríin sín (sem ég hef líka gert) af því þær vantar alltaf meiri pening af því að þrátt fyrir að þær vinni eins og skepnur þá hafa þær í ráðstöfunartekjur 260.000 kall á mánuði,

ég hitti konur sem eru enn að reyna að krafsa sig undan Hruninu, sem eru í viðbjóðslegum skuldafjötrum 10 árum eftir að sturlaðir kapítalistar rústuðu lífi alþýðufólks á Íslandi,
ég hitti konur sem hafa unnið „konustörf“ alla sína ævi og aldrei fengið neitt fyrir nema rétt nóg fyrir ferðunum í Bónus,
konur sem hafa þurft að þola það að í þær sé kastað þúsundkalli hér og þúsundkalli þar og það kallað „kaupmáttaraukning“,
ég hitti konur sem geta ekki leigt í Reykjavík, sem er ýtt útaf sturluðum leigumarkaði þar og þurfa því að fara langar vegalengdir til að sækja vinnu, með öllum þeim tryllta kostnaði sem því fylgir,
ég hitti konur sem misstu húsnæðið sitt og fengu þau „ráð“ hjá kerfinu að leita skjóls hjá Kvennaathvarfinu (það þarf kannski að fara að opna athvarf fyrir þau sem verða fyrir efnhagslegu ofbeldi samræmdar láglaunastefnu?),
ég hitti konur héðan og þaðan sem vinna á útsölumarkaði íslensks atvinnulífs,
alla sína ævi, frá því að þær eru unglingsstelpur og fram á gamals aldur og geta samt aldrei, aldrei strokið um frjálst höfuð efnhagslega.
Börn eru frábær, ís er góður, það er gaman að spjalla um liðna tíð og sumum er fullveldið hugleikið. En getum við ekki verið sammála um það að á meðan stórum hópi fólks er haldið, með öllum tiltækum ráðum, pikkföstum á botni hins efnhagslega stigveldis, að á meðan 70 fermetra blokkaíbúð í Breiðholtinu er leigð af harðsvíruðum kapítalistum á 240.000 krónur á mánuði og 43 fermetra íbúð á 171.000 krónur á mánuði, á meðan manneskja á lágmarkslaunum fær útborgað til framfærslu 235.508 krónur á mánuði, að á meðan staðan er svona í blessuði fullveldinu,
þá er kannski hægt að geyma samtöl um ís og einbeita sér að því sem skiptir máli sem hlýtur meðal annars að vera þetta:  Hvað teljum við vera í lagi að bjóða fullorðnu vinnandi fólki uppá í íslensku samfélagi?
Þegar við erum búin að komast að ásættanlegri og mannsæmandi niðurstöðu þar, getum við kannski farið að ræða ís og fullveldi.
Ég vil gjarnan, líkt og Katrín, skila ungu kynslóðinni góðu búi en ég sætti mig ekki við að góða búið sé byggt upp á vinnu fólks sem fær ekki réttmætan skerf af búsældinni.  Það er einfaldlega svo einfalt.“ Segir Sólveig Anna Jónsdóttir um stefnuræðu forsætisráherra Íslands sem flutt var í gær á Alþingi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    219 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Eftirlýst kona handtekin

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    197 deilingar
    Share 79 Tweet 49
  • Ísland kaupir vopn fyrir Úkra­ínu – Heildar upphæð nemur ríflega 63 milljörðum

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?