• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 29. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tilkynnt um 21 nauðgun á mánuði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. september 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
  • Lögreglunni bárust tilkynningar um 125 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins, sem samsvarar 28% fjölgun frá því í fyrra.
  • Tilkynnt er að jafnaði um 21 nauðgun á mánuði.
  • Mikil aukning tilkynninga vegna kynferðislegrar áreitni og brota á kynferðislegri friðhelgi.

Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar. Í skýrslunni má finna upplýsingar um tilkynningar til lögreglu vegna kynferðisbrota fyrstu sex mánuði ársins.

Lögreglan skráði tilkynningar um 125 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins 2022, sem samsvarar 28% fjölgun frá því í fyrra.  Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fjölgar skráðum nauðgunum um 30%.  Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um 21 nauðgun á mánuði hjá lögreglunni.

Áhersla á að fækka brotum og fjölga tilkynningum

Í málaskrá lögreglunnar vegna kynferðisbrota er bæði skráð hvenær brot eru tilkynnt og hvenær þau áttu sér stað.  Ástæða þess er að oft líður tími á milli þess að brotið á sér stað og tilkynnt er um það til lögreglu. Þegar horft er til tíma brots, var tilkynnt um 83 nauðganir sem áttu sér stað fyrstu sex mánuði ársins eða 14 nauðganir á mánuði, sem samsvarar 1% fækkun frá því í fyrra. Þegar skoðuð er tímasetning nauðgana eftir árum og embættum um helgar þá á 66% þeirra sér stað á höfuðborgarsvæðinu og 65% þeirra frá 18:00-06:00 að morgni.

Nær línulegur vöxtur var í tilkynntum nauðgunum frá 2010. Þeim fækkaði þó verulega á meðan sóttvarnartakmarkanir stóðu sem hæst í Covid-19 heimsfaraldrinum. Þegar losað var aftur um takmarkanir fjölgaði tilkynntum nauðgunum til lögreglunnar á nýjan leik.

Vitundarvakning dómsmálaráðuneytisins, Neyðarlínunnar, ríkislögreglustjóra, lögreglunnar og fjölda annarra samstarfsaðila undir slagorðunum „Verum vakandi“ og „Góða skemmtun“ sem hófst í mars og lauk nú um miðjan ágúst var því beint sérstaklega að skemmtanalífinu og viðburðum með það tvíþætta markmið að fækka brotum og fjölga tilkynningum til lögreglunnar.

Mikil aukning tilkynninga vegna kynferðislegrar áreitni

Lögreglan skráði í allt 328 tilkynningar um kynferðisbrot á tímabilinu, sem samsvarar 5% fjölgun frá síðustu þremur árum þar á undan.  Ef borið er saman við fyrstu sex mánuði ársins 2021 fækkar í heildina skráðum kynferðisbrotum um 9% á milli ára.  Skráðum blygðunarsemisbrotum og kynferðisbrotum gegn börnum fækkar. Brot vegna kynferðislegrar áreitni og brot gegn kynferðislegri friðhelgi heldur hins vegar áfram að fjölga, og voru 64 á tímabilinu. Til samanburðar var tilkynnt um 36 brot að jafnaði síðustu þrjú ár þar á undan, eða aukning um 78%.

Meðalaldur grunaðra er 35 ár og var 95% þeirra karlar, þar af 33% undir 25 ára.

Ríkislögreglustjóri birtir ársfjórðungslega tölfræðiupplýsingar um kynbundið ofbeldi, kynferðisbrot og heimilisofbeldi í samræmi við áherslur dómsmálaráðherra um aukna vitundarvakningu um kynferðisbrot og kynbundið ofbeldi.

Upplýsingar eru aðgengilegar á Kynbundið ofbeldi | Lögreglan (logreglan.is)

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    75 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • ,,Pabbi þinn er vondur og hættulegur“ – ,,Èg elska þig pabbi“

    104 deilingar
    Share 42 Tweet 26
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?