• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 10. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hnúfubak bjargað úr veiðarfærum í Steingrímsfirði

Hnúfubak bjargað úr veiðarfærum í Steingrímsfirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. september 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Björgunarsveitir frá Drangnesi og Hólmavík losuðu i gær hnúfubak sem hafði fest sig í veiðarfærum í Steingrímsfirði.

Tilkynning um hvalinn barst eftir hádegi til Matvælastofnunar og var hann þá talinn dauður. Myndir úr dróna samtakanna Whale Wise staðfestu hinsvegar að dýrið væri lifandi en samtökin hafa verið við hvalarannsóknir á svæðinu. Var þá ráðist í björgunaraðgerðir að fengnu samþykki matvælaráðherra sem fer með málefni sjávarspendýra. Viðbragðsteymið „Hvalir í neyð“ var kallað kallað saman en teymið samanstendur af sérfræðingum og fulltrúum frá Matvælastofnun, Landhelgisgæslunni, almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, Hafrannsóknastofnun, Háskóla Íslands, Umhverfisstofnun og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Í samstarfi við Háskóla Íslands rannsaka Whale Wise umfangið á sjáanlegum ummerkjum og örum á hvölum sem flækjast í veiðarfærum. Umræddur hnúfubakur hefur verið nefndur „Bird“ í rannsóknum samtakanna. Bird er tæplega níu metra langur og hefur sést á svæðinu síðan um miðjan ágúst sl. en hefur sést á Skjálfandaflóa fyrri ár. Bird er talinn vera unghveli en kyn er enn óljóst.

Eftir að hvalurinn hafði losnað við veiðarfærin kvaddi hann með kröftugu sporðaslagi og sást stefna til hafs og út á Húnaflóa.

Frá björgunaraðgerðum – Whale Wise/Dodds Flordespina

 

„Það er vissulega fagnaðarefni að það tókst að bjarga dýrinu úr þessari prísund“ sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra. „Ég hef lagt mikla áherslu á dýravelferð í mínum störfum sem matvælaráðherra og í ráðuneytinu hefur aukin áhersla verið lögð á þann málaflokk, meðal annars er framundan stefnumótunarvinna á vegum skrifstofu sjálfbærni og og dýravelferðar“

Á þingmálaskrá fyrir komandi þingvetur hefur matvælaráðherra meðal annars lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um velferð dýra auk tillögu til þingsályktunar um stefnumótun á sviði dýravelferðar. Tímabært þykir að taka málaflokkinn til gagngerrar skoðunar í ljósi meðal annars aukinnar vitundar og þekkingar á velferð dýra og samfélagslegra breytinga.

Ef vart verður við strandaðan hval, eða hval flæktan í veiðarfæri er hægt að finna á heimasíðu Matvælastofnunar hvernig beri að tilkynna um atvikið.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Netsvindl, fjárkúgun og fleira

    Laus hundur veittist að barni

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ó­lög­mæt eigna­upp­taka í gegnum verð­tryggingu eru 60 milljarðar síðustu þrjú ár

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Frekja, græðgi og yfirgangur – eigum við ekki að rísa upp gegn þessu?“

    128 deilingar
    Share 126 Tweet 1
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?