• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Um bætta innviði – ,,græðgi og vilji til að misnota fólk''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. desember 2019
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Um bætta innviði

Í veðurhamförum vikunnar erum við enn og aftur minnt á hvað við eigum stórkostlegar björgunarsveitir og sjálfboðaliða sem ávallt eru til taks. Fólk sem stekkur af stað út í ofsaveður til að hjálpa náunganum. Auk björgunarsveita leggja margir starfsmenn orkufyrirtækja og fleiri stofnana nú nótt við dag við erfið skilyrði til að koma á rafmagni. Fyrir allt þetta frábæra fólk erum við þakklát og sendum því okkar bestu strauma.
Við verðum að gera skýlausa kröfu um örugga og trausta innviði um allt land. Grunnkerfin verða að vera í lagi og það er okkar sameiginlega verkefni núna að byggja þá upp og viðhalda svo sómi sé af.
Einn fjölmargra funda sem ég átti í vikunni var fundur með fjölmiðlafólki frá Austur Evrópu. Þau tóku við mig viðtal og veltu eðlilega upp spurningunni: Hvernig stendur á því að verkafólk frá Austur Evrópu getur ekki verið öruggt um að fá sanngjörn laun og góðan aðbúnað í velferðarþjóðfélaginu Íslandi?
Græðgi og vilji til að misnota fólk
Í hugum margra er Ísland fyrirmyndaríki. Jafnrétti mælist hvergi meira (fer svolítið eftir mælikvörðum) og allir eiga að njóta sanngirnis og lífsgæða. Ég svaraði því til að þar sem græðgi og vilji til að misnota fólk er til staðar getur verkafólk ekki verið óhult. Við hins vegar reynum eftir fremsta megni að þétta í götin og gæta þess að það borgi sig ekki að misnota fólk í vinnu. Að atvinnurekendur sem ætla sér að nýta sér fólk í bágri stöðu þurfi að gjalda fyrir það.
Við höfum verið háð aðstoð frá erlendu verkafólki til að reka okkar samfélag á undanförnum árum og eigum að vera þakklát þeim sem hingað koma til að leggja hönd á plóg. Það er ömurleg tilhugsun að einhver þeirra verði fyrir misnotkun í vinnu svo jaðrar á köflum við þrældóm. Eitt af stóru verkefnunum á borði aðila vinnuarkaðarins og stjórnvalda er einmitt að breyta lögum og verklagi þannig að eftirlit verði meira, aðgengi að upplýsingum betra, þjónusta við fólk af erlendum uppruna bætt og síðast en ekki síst, að viðurlög við launaþjófnaði og kjarasamningsbrotum verði þannig að það sé einfaldlega ekki þess virði fyrir þannig innréttaða atvinnurekendur að brjóta á fólki.
Við hljótum að geta sammælst um slíkt og hrint í framkvæmd betri umgjörð utan um heilbrigðan vinnumarkað á nýju ári. Þessa innviði þarf líka að bæta.
Gleðilega aðventu, Drífa
https://gamli.frettatiminn.is/2019/12/13/hvenaer-verdur-thyfid-sott-og-byrjad-ad-byggja-upp-vorar-funu-stodir/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    124 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    56 deilingar
    Share 39 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?