Lögmæti borgarstjórnakosninganna í maí 2018 send til Dómsmálaráðuneytisins til úrskurðar
,,Ég hef ákveðið að vísa þeim lögbrotum sem framin voru í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna – að mati Persónuverndar til dómsmálaráðuneytisins til úrskurðar um lögmæti kosninganna“ Segir Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins.
Hugsanlegt getur verið að borgarstjóri og borgarstjórn verði þá að segja af sér og að boðað verði til nýrra kosninga ef að úrskurður fer á þann veg að um kosningasvik hafi verið um að ræða? En nú fer málið sinn veg í gegnum dómskerfið sem að ákveður framhald málsins með endanlegum úrskurði.
Dómsmálaráðuneytið úrskurði hvort borgarstjórnakosningar voru löglegar
Vigdís Hauksdóttir lagði fram eftirfarandi bókun um málið á fundi borgarráðs í dag:
,,Stofnunum ríkissins, Persónuvernd, Hagstofu Íslands, Þjóðskrá, Dómsmálaráðuneytinu, Félagsvísindasviði Háskóla Íslands, Póst- og fjarskiptastofnun og Vísindasiðanefnd var þvælt inn í hina svokölluðu „kosningarannsókn“ sem Reykjavíkurborg stóð fyrir í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna.
Aldrei fyrr á Íslandi hefur verið gerð álíka árás á lýðræðið í landinu. Nánast í hverri einustu stofnun loguðu rauð ljós. Dómsmálaráðuneytið gerði alvarlegar athugasemdir auk Persónuverndar.
Póst- og fjarskiptastofnun hafnaði beiðni Reykjavíkur um að senda smáskilaboð til kjósenda með þessum ákvörðunarorðum: Umsókn Reykjavíkurborgar, í samstarfi við Háskóla Íslands, um að fá undanþágu frá banni við óumbeðnum fjarskiptum samkvæmt 46. gr. laga um fjarskipti 81/2003 er hafnað. En áfram var haldið.
Ekkert í þessu máli varðar almannahagsmuni eins og það hugtak er skýrt í lögum. Það er kristaltært að viljinn til þess að hafa áhrif á kosningarnar var keyrður áfram af ásettu ráði og verknaðurinn var fullframinn og tókst. Reykjavíkurborg hylmdi yfir að svokölluð rannsókn var útvíkkuð á skrifstofum ráðhússins þegar ákveðið var að bæta konum sem voru 80 ára og eldri og öllum útlendingum með lögheimili í Reykjavík skilaboð/bréf.
Það hefur verið úrskurðað ólögmætt samkvæmt úrskurði Persónuverndar. Borgarfulltrúi Miðflokksins hefur ákveðið að senda málið áfram til Dómsmálaráðuneytisins til frekari úrskurðar um lögmæti borgarstjórnakosninganna sem fram fóru hinn 26. maí 2018.” Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/02/10/kosningamisferli-i-reykjavik-tha-er-gott-ad-eiga-goda-ad/