• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

Breytingar á starfsmannalögum í samráðsgátt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Drög að frumvarpi til breytinga á starfsmannalögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til kynningar og umsagnar

Frumvarpið hefur að markmiði að bæta þjónustu við almenning og efla mannauð ríkisins um leið og áminningarskylda er aflögð. Ákvörðun um uppsögn eða lausn embættismanna um stundarsakir telst áfram stjórnvaldsákvörðun samkvæmt stjórnsýslulögum en áhersla verður lögð á endurgjöf og samtal við starfsmenn í stað áminningar.

Meginbreytingin sem lögð er til í frumvarpinu er að fella brott skyldu til að veita starfsmanni eða embættismanni formlega áminningu áður en til uppsagnar eða lausnar um stundarsakir getur komið. Eftir sem áður njóta starfsmenn og embættismenn þeirrar réttarverndar sem felst í því að uppsögn eða lausn um stundarsakir er stjórnvaldsákvörðun samkvæmt stjórnsýslulögum.

Lögð verður rík áhersla á mikilvægi reglulegs samtals og endurgjafar til starfsmanna um afmörkuð atriði eða verkefni þar sem jafnframt er unnt að koma á framfæri jákvæðum athugasemdum. Beita á uppbyggilegum aðferðum til að leiðbeina starfsfólki í stað íþyngjandi áminningarferlis. Áður en til uppsagnar getur komið verða þannig að jafnaði að eiga sér stað samskipti við viðkomandi starfsmann, t.a.m. í formi leiðbeinandi samtala eða tilmæla.

Frumvarpið er liður í framþróun í mannauðsmálum hjá ríkinu. Tilgangurinn er að tryggja framúrskarandi grunnþjónustu í takt við síbreytilegar aðstæður í samfélaginu. Þar gegnir starfsfólk ríkisins lykilhlutverki. Mikilvægt er að samhliða vandaðri stjórnun mannauðsmála geti stofnanir ríkisins skapað starfsfólki heilbrigt og öruggt starfsumhverfi.

Aðrar breytingar á ákvæðum laganna varða einkum ákvæði um auglýsingaskyldu, tímabundna setningu í embætti og stöðu embættismanna vegna meðferðar mála hjá nefnd sem rannsakar lausn embættismanna um stundarsakir.

Frumvarpsdrögin má nálgast í samráðsgátt stjórnvalda og frestur til umsagnar er til og með 27. febrúar nk.

Umræða
Share13Tweet8
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?