Ísland sýktasta svæði í heimi
,,Stjórnvöld sem treysta sér ekki til að stjórna eiga að taka pokann sinn og gefa þeim kost á að taka við keflinu sem þau ekki geta valdið sjálf.“
,,Ég er orðin svo gáttuð á íslenskum ráðamönnum að mér er nánast orðavant og gerist það ekki oft. Nú eru það aðrar þjóðir sem líta til okkar og þeirra snilldar aðgerða sem við erum að beita til varnar Coved19, ef marka má ummæli utanríkisráðherra. Er þetta eitthvað grín?
Hver ríkisstjórnin á fætur annari herðir aðgerðir sínar og afmarkar landamæri sín meira en flest okkar hafa orðið vitni að á ævinni.
Eru það þessar aðgerðir sem utanríkisráðherra er að vísa til á meðan Íslandi er haldið galopnu fyrir öllum þeim sem sækja vilja okkur heim.
Ísland sýktasta svæði í heimi
Nánast allir ferðamenn sem enn líta við okkur þar sem við erum nú viðurkennd sem eitt sýktasta svæði í heimi (sem við erum miðað við höfðatölu) fá að gera það sem þeim sýnist, engin sóttkví, ekkert vesen,
Hið svo nefnda „fordæmalausa samkomubann“ sem taka á gildi á miðnætti annað kvöld er enn ein skrautfjöðrin í þennan annars gisna hatt ríkisstjórnarinnar. Ég segi ekkert annað en að öllu má nú nafn gefa. Enn er s.s í lagi að fólk stundi líkamsræktarsali, kófsveitt frussandi af áreynslu í allar áttir, enn er í lagi að skreppa í bíó og já strætó, en bara muna að hafa tvo metra á milli.
Svo eru það leik- og grunnskólarnir, jú allt í fína bara fækka í deildunum niður í tuttugu. Segja litlu börnunum að halda sig í tveggja metra fjarlægð frá öðrum börnum. Hvað með leikskólakennarana sjálfa? Hvernig eiga þeir að sinna börnunum með tveggja metra á milli sín og barnsins, eða skiptir fjarlægðin þá engu máli?
Rökleysa, máttleysi og ákvarðanafælni
Hvernig er mögulegt að bjóða okkur upp á þessa rökleysu, máttleysi og ákvarðanafælni. Hvernig ætla þessir ráðamenn með fulltingi „sérfræðinganna“ að svara fyrir það þegar þau missa tökin? Sem ég persónulega er sannfærð um að þau munu gera. Það þarf ekki að nefna á kostnað hverra, það vita það allir sem vita vilja.
Þeir eru all nokkrir snillingarnir sem stíga fram og gera lítið úr sannfæringu minni, gera lítið úr þeim aðgerðum sem ég segist vilja grípa til svo vernda megi þjóðina fyrir óafturkræfum afleiðingum sem við þurfum að mæta vegna kjarkleysis þeirra sem í raun eiga að vernda okkur gegn hvers konar vá.
Stjórnvöld sem treysta sér ekki til að stjórna eiga að taka pokann sinn og gefa þeim kost á að taka við keflinu sem þau ekki geta valdið sjálf.“ Segir Inga Sæland um aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
https://www.facebook.com/inga.saeland/posts/10219642973098070