Einn þekktasti gagnrýnandi landsins, Jón Viðar Jónsson er mjög óánægður með svör Guðrúnar Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar sem vísaði ásökunum Ólafs Haukssonar á bug um vitneskju Krónunnar um brotastarfsemi eiganda Wok on veitingastaðarins sem var í föstum viðskiptum við verslunina.
,,Afskaplega er þetta aumleg tilraun hjá framkvæmdastjóra Krónunnar að afsaka óafsakanlegt kæruleysi sitt gagnvart fyrirtækjum þessa vétnamska gangsters sem lögreglan hefur loksins náð að góma.
Hún hellir skætingi yfir Ólaf Hauksson, en játar svo að Krónan þurfi nú að gera aðeins meira til að tryggja að ekki sé eitrað fyrir viðskiptavini verslunarinnar.
Heldur konan að við séum þau fifl að sjá ekki hvurslags yfirklór þetta er? En Ólafur á þakkir skildar fyrir að vekja athygli á hneykslinu. Og það verður sannarlega bið á þvi að ég fari aftur að versla i Krónunni.
Ég efast um að ég myndi þora að smakka á dósamatnum úr henni, hvað þá meir.“ Segir Jón Viðar Jónsson.
Umræða