Formaður Afstöðu, Guðmundur Ingi Þóroddsson átti í gær (miðvikudaginn 13.03) fund með Guðna Th. Jóhannessyni, Forseta Íslands á Bessastöðum.
Tilefni fundarins voru tvær skýrslur sem komu út á síðasta ári um stöðu kvenna í íslenskum fangelsum. Annars vegar „skýrsla umboðsmanns Alþingis um konur í fangelsi“[1] og hins vegar skýrsla Ríkisendurskoðunar: „Aðbúnaður, endurhæfing og árangur“.
Í skýrslu umboðsmanns Alþingis frá því í júlí 2023 kemur fram að „fyrirkomulag við afplánun kvenna hér á landi er almennt til þess fallið að gera stöðu þeirra lakari samanborið við karlfanga. Ástæðurnar má að verulegu leyti rekja til færri vistunarúrræða og þess að konur kunna að vera vistaðar í Fangelsinu Hólmsheiði um lengra skeið þar sem fangelsin að Litla-Hrauni og Kvíabryggju eru einungis ætluð körlum. Lakari staða kvenna birtist þó einnig í því að í ýmsu hefur ekki verið tekið nægilegt tillit til sérstöðu þeirra við afplánun enda ekki verið mótuð heildræn stefna um vistun kvenfanga. Þetta kemur fram í þemaskýrslu umboðsmanns um aðbúnað og aðstæður kvenna í fangelsum hér á landi.“
Þá kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í byrjun desember 2023 að aðstæður kvenfanga séu óásættanlegar.[2] Segir í skýrslunni: „Ríkisendurskoðun telur með öllu óverjandi að aðstöðumunur á grundvelli kyns sé jafn mikill og raun ber vitni og að ekkert sérstakt vistunarúrræði sé til staðar fyrir kvenfanga,“ Þá er sérstaklega tekið fram að almennt sé lagt upp með fullkominn aðskilnað kynja og telur Ríkisendurskoðun að hugmyndir dómsmálaráðuneytisins um stækkun fangelsisins Sogni frá því í september komi ekki að fullu til móts við ábendingar umboðsmanns Alþingis í þessum efnum.
Þrátt fyrir skýrslur umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar – auk áralangra athugasemda Afstöðu og erlendra eftirlitsaðila hefur lítið sem ekkert breyst varðandi stöðu kvenfanga á Íslandi. Á því þarf að verða breyting!
Afstaða sá sig knúna til að leita áheyrnar hjá Forseta Íslands.
Fundurinn átti sér stað á Bessastöðum og varði í um klukkustund. Í tilkynningu forsetaembættisins kemur fram að: „Forseti fundaði með Guðmundi Inga Þóroddssyni, formanni Afstöðu, félags fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun. Rætt var um leiðir til að auka vægi betrunar í fangelsum, meðal annars með auknum möguleikum til menntunar og öðrum forvirkum aðgerðum þannig að líklegra sé en ella að fangar geti skapað sér viðunandi sess í samfélaginu að fangelsisvist lokinni. Einnig var rætt um málefni aðstandenda fanga og ekki síst um mikilvægi þess að hugað sé betur að aðbúnaði kvenna sem þurfa að afplána dóma í íslenskum fangelsum. Félagið Afstaða var stofnað á Litla-Hrauni árið 2005 og verður því 20 ára á næsta ári.“
Afstaða þakkar Forseta Íslands fyrir góðar móttökur.
f.h. Afstöðu, félags fanga á Íslandi
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður
[1] https://www.umbodsmadur.is/frettir/nanar/9414/stada-kvenna-lakari-en-karla-i-fangel
[2] https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2023-12-07-adstaedur-kvenfanga-oasaettanlegar-399105