• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Næsta lægð er væntanleg

Næsta lægð er væntanleg

Gul viðvörun vegna veðurs: Breiðafjörður, Vestfirðir og Strandir og norðurland vestra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Nú í morgunsárið er snjókoma eða slydda með köflum norðanlands og ferðalangar eru hvattir til að kanna ástand vega hjá Vegagerðinni áður en lagt er af stað, sérílagi ef ætlunin er að fara yfir fjallvegi. Í öðrum landshlutum ætti að vera þurrt í dag og vindinn lægir og verður víðast hvar hægur eftir hádegi.

Næsta lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf seint í dag og áhrifa hennar fer að gæta í kvöld og nótt með vaxandi vindi með úrkomu. Á morgun er útlit fyrir norðaustan 10-18 m/s, en 15-23 norðvestantil á landinu. Slydda eða snjókoma með köflum, en styttir upp suðvestanlands eftir hádegi. Það eru því horfur á hríðarveðri norðvestantil á morgun og einnig geta verið erfið akstursskilyrði við suðurströndina. Dregur úr vindi annað kvöld.
Spá gerð: 14.03.2026 06:10. Gildir til: 15.03.2026 00:00.

 Gul viðvörun vegna veðurs: Breiðafjörður, Vestfirðir og Strandir og norðurland vestra   Meira

Veðurhorfur á landinu
Minnkandi norðvestan- og vestanátt í dag, hæg breytileg átt síðdegis. Snjókoma eða slydda með köflum norðanlands fram eftir degi, annars að mestu þurrt. Hiti um eða yfir frostmarki.
Hvessir allvíða í kvöld og nótt með úrkomu.

Norðaustan 10-18 m/s á morgun, en 15-23 norðvestantil á landinu. Slydda eða snjókoma með köflum, en styttir upp suðvestanlands eftir hádegi. Dregur úr vindi annað kvöld.
Spá gerð: 14.03.2026 07:41. Gildir til: 16.03.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Norðaustan 8-15 og él norðan- og austantil, annars þurrt að mestu. Hvessir við suðurströndina um kvöldið, hiti kringum frostmark.

Á þriðjudag:
Norðaustan 10-18, en talsvert hægari norðaustan- og austanlands. Snjókoma eða él á norðanverðu landinu og rigning eða slydda suðaustantil. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:
Vestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en dálítil él norðaustanlands fram eftir degi. Heldur kólnandi.

Á fimmtudag:
Hlý sunnanátt og rigningmeð rigningu og súld, en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi.

Á föstudag:
Suðvestanátt og él, en léttir til austanlands. Kólnandi veður.
Spá gerð: 14.03.2026 08:38. Gildir til: 21.03.2026 12:00.

 

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Næsta lægð er væntanleg

    Næsta lægð er væntanleg

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?