Bandaríkin, Bretland og Frakkland gerðu í nótt loftárásir gegn sveitum Bashars al-Assads Sýrlandsforseta
Donald Trump flutti ávarp í Hvíta húsinu í nótt „Ég fyrirskipaði að Bandaríkjaher að fram- kvæma árásir á skotmörk sem tengjast efnavopnagetu einræðisherra Sýrlands, Bashars al-Assads. Sameiginlegar loftárásir með hersveitum Frakklands og Bretlands eru nú í gangi – við þökkum ríkjunum fyrir.“ Loftárásirnar voru gerðar vegna efnavopnaárar í Sýrlandi sem drap almenna borgara í Sýrlandi eins og fram hefur komið í fréttum áður.
Bein útsending:
https://www.youtube.com/watch?v=Qmu26hkNhrA
,,Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkín hafa hert sókn gegn barbarisma og grimmd,“ sagði Trump forseti í Hvíta húsinu klukkan 21:00 staðartíma ( klukkan 2 í nótt ). ,,Það stefnir í það að við séum að skapa saman sterka andstöðu gegn framleiðslu, dreifingu og notkun á efnavopnum,“ bætti hann við.
Loftárásirnar voru gerðar á höfuðborgina, Damaskus, auk tveggja staða nálægt borginni Homs, að sögn yfirmanna í Pentagon.
Sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum sagði að árásin á bandamenn rússa mundi hafa afleiðingar. Rússar höfðu áður varað við hernaðaraðgerðum í Sýrlandi og. Hafa hótað að skjóta niður eldflaugar sem beint yrði gegn her Sýrlands.
Pentagon tilkynnti að skotmörkin væru aðallaega, vísinda og rannsóknastofnun í Damaskus, sem tengist framleiðslu á efna- og líffræðilegum vopnum. Geymsla efnavopna vestan borgarinnar Homs og svo geymslur efnavopna og mikilvæg yfirstjórn þeirra sem er einnig nálægt Homs
Sýrlenskar sjónvarpsstöðvar segja að herirnir hafi skotið tugum eldflaugua og lýstu því yfir að rannsóknarstöðin í Damaskus hafi verið eyðilögð.