Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka
Hvað er til ráða?
Við höfum verið kölluð ýmsum nöfnum fyrir það eitt að berjast fyrir réttlæti og þau orð eru farin að mynda brynju, því við vitum betur.
Ísland stendur frammi fyrir raunverulegum áskorunum vegna aukins fjölda hælisleitenda. Samt þorir fjöldi fólks ekki að tjá sig opinberlega um neikvæð áhrif þessarar þróunar – af ótta við að vera kallaður rasisti, fordómafullur eða útlendingahatur.
Í stað þess að ræða málið af ábyrgð og með rökum, ríkir þöggun og stimplun. Fólk sem spyr eðlilegra spurninga um kostnað, öryggi og réttlátar reglur er dregið í efa – ekki fyrir orð sín, heldur fyrir að þora að tala.

Þetta er hættuleg þróun fyrir lýðræðið. Tjáningarfrelsi þýðir frelsi til að gagnrýna stefnu stjórnvalda – án þess að eiga von á að úthrópaður af herskáum minnihlutahópum.
Það er kominn tími til að brjóta múrinn. Gagnrýni á núverandi stefnu stjórnvalda í málefnum hælisleitenda er ekki hatur heldur nauðsynleg til að vernda lýðræði, réttlæti og öryggi fyrir alla Íslendinga.
Hittumst á Austurvelli kl. 14.00 í dag, laugardag. Hlakka til að sjá ykkur!