• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hæstiréttur samþykkir áfrýjun vegna 325 milljóna sektar Samkeppnisstofnunar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. ágúst 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

,,Málið hófst þegar Múrbúðin snéri sér til Samkeppniseftirlitsins og gerði grein fyrir tilraunum Byko og gömlu Húsasmiðjunnar til að fá Múrbúðina til að taka þátt í hinu ólögmæta samráði.“

Þann 14. júní 2019 staðfesti Landsréttur að Byko hefði framið alvarleg brot á samkeppnislögum. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði talið 65 mkr. sekt hæfilega en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði hækkað sekt Byko í 400 mkr. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að sekt Byko skyldi vera 325 mkr.
Landsréttur taldi að þegar brot Byko á samkeppnislögum væru „metin heildstætt [verði] að leggja til grundvallar að um sé að ræða alvarleg brot sem beinast gegn mikilsverðum hagsmunum neytenda. Brotin voru framin af ásetningi.“ Lækkun Landsréttar á þeirri sekt sem ákveðin var í héraði byggði m.a. á því að Landsréttur féllst ekki á það með Samkeppniseftirlitinu að Byko hefði einnig brotið gegn EES-samningnum.
Samkeppniseftirlitið telur að Landsréttur hafi ekki beitt banni EES samningsins við samkeppnishamlandi samráði með réttum hætti. Þá telur eftirlitið að sú sekt sem Landsréttur taldi hæfilega byggi á röngum forsendum og tryggi ekki nægjanleg varnaðaráhrif. Sökum þessa óskaði Samkeppniseftirlitið eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar. Hefur Hæstiréttur nú samþykkt þá beiðni Samkeppniseftirlitsins. Sjá hér:
https://www.haestirettur.is/malskotsbeidnir/malskotsbeidni/?id=8d688f34-7840-4c0f-9c11-bf905edb9ba8
Forsagan:
Aðdragandi málsins er sá að í maí 2015 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Byko hefði brotið gegn samkeppnislögum og EES-samningnum með umfangsmiklu ólögmætu samráði við gömlu Húsasmiðjuna. Var um að ræða verðsamráð á mikilvægum byggingavörum. Málið hófst þegar Múrbúðin snéri sér til Samkeppniseftirlitsins og gerði grein fyrir tilraunum Byko og gömlu Húsasmiðjunnar til að fá Múrbúðina til að taka þátt í hinu ólögmæta samráði. Taldi Samkeppniseftirlitið að um alvarleg brot væri að ræða og lagði 650 mkr. sekt á Norvik, móðurfélag Byko.
Norvik og Byko kærðu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í október 2015 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að Byko hefði tekið þátt í ólögmætu verðsamráði og brotið gegn samkeppnislögum. Hins vegar féllst nefndin ekki á að ákvæði EES-samningsins hefðu verið brotin. Einnig taldi nefndin að brot Byko hafi ekki verið jafn alvarleg og Samkeppniseftirlitið lagði til grundvallar. Taldi nefndin því hæfilegt að lækka sekt Byko úr 650 mkr. í 65 mkr. Héraðsdómur taldi hins vegar brotin mun alvarlegri og hækkaði sekt Byko að kröfu Samkeppniseftirlitsins. Féllst héraðsdómur einnig á það með eftirlitinu að Byko hefði brotið gegn banni EES samningsins við samkeppnishamlandi samráði.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    221 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?