• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 13. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. ágúst 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Í síðustu viku slösuðust tíu vegfarendur í tíu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 4. – 10.  ágúst, en alls var tilkynnt um 33 umferðaróhöpp í umdæminu.

Sunnudaginn 4. ágúst kl. 5.15 féll hjólreiðamaður af rafmagnshlaupahjóli í Hafnarstræti í Reykjavík. Hjólreiðamaðurinn, sem er grunaður um ölvun, var fluttur á slysadeild.

Þriðjudaginn 6. ágúst kl. 7.31 féll hjólreiðamaður af reiðhjóli á Hverfisgötu í Hafnarfirði. Hann var fluttur á slysadeild.

Þrjú umferðarslys voru tilkynnt miðvikudaginn 7. ágúst. Kl. 9.03 var bifreið ekið um Klukkurima í Reykjavík, að Langarima, en þar hugðist ökumaðurinn beygja og aka Langarima til norðurs. Á sama tíma þveraði hjólreiðamaður á reiðhjóli veginn á hraðahindrun svo árekstur varð með þeim á gatnamótunum.

Hjólreiðamaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild. Kl. 17.09 var bifreið ekið vestur Borgartún í Reykjavík, að hringtorgi við Nóatún og síðan beygt suður Nóatún. Á sama tíma fór hjólreiðamaður á rafmagnshlaupahjóli austur Borgartún á göngustíg, inn á merkta gangbraut sem þverar Nóatún og þá varð árekstur með þeim. Ökumanninum og hjólreiðamanninum ber ekki saman um málsatvik. Sá fyrrnefndi sagði engan árekstur hafa orðið, en hinn sagði hið gagnstæða. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 20.01 varð árekstur bifreiðar og reiðhjóls í Laxatungu í Mosfellsbæ, við Kvíslartungu. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild.

Fimmtudaginn 8. ágúst kl. 0.59 féll hjólreiðamaður af rafmagnshlaupahjóli á göngustíg á milli Stekkjarbakka og Elliðaár í Reykjavík. Hjólreiðamaðurinn, sem er grunaður um ölvun, var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt föstudaginn 9. ágúst. Kl. 7.14 féll hjólreiðamaður af reiðhjóli þegar hann rakst utan í annað reiðhjól þar sem hjólahópur var á ferðinni á Bæjarbraut í Garðabæ, nærri Krókamýri. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 13.34 var bifreið ekið vestur Þverholt í Mosfellsbæ, frá hringtorgi við Vesturlandsveg, og aftan á aðra bifreið sem var kyrrstæð vegna umferðar fram undan. Ökumaður fremri bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt laugardaginn 10. ágúst. Kl. 18.04 var bifreið ekið um bifreiðastæði í Skógarlind í Kópavogi og á rafmagnsreiðhjól. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild. Og kl. 20.03 var bifreið ekið um Veltusund í Reykjavík og utan í gangandi vegfaranda. Hann var fluttur á slysadeild.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    242 deilingar
    Share 97 Tweet 61
  • Mohamed og Amir dæmdir fyrir nauðgun – með alþjóðlega vernd á Íslandi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Vitni óskast að banaslysi

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • Kærður fyrir hnupl í kynlífstækjaverslun

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?