Helstu tíðindi frá lögreglu 17:00-05:00. Þegar þetta er ritað gista 11 einstaklingar í fangaklefa. Alls eru bókuð 80 mál í kerfum lögreglu á tímabilinu. Listinn er ekki tæmandi
Lögreglustöð 1
Höfð afskipti af einstaklingi sem er grunaður um ólöglega dvöl. Vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Tilkynnt um innbrot í heimahús.
Óskað eftir aðstoð lögreglu á heilbrigðisstofnun vegna ölvaðs einstaklings sem lét ófriðlega og var til vandræða eftir að búið var að aðstoða hann. Einstaklingnum vísað út og hélt hann sína leið.
Tilkynnt um rúðubrot. Einn einstaklingur handtekinn grunaður um skemmdarverkið og er hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Tilkynnt um líkamsárás á skemmtistað.
Tilkynnt um rafhlaupahjólaslys.
Tilkynnt um rúðubrot í fyrirtæki.
Höfð afskipti af einstaklingi og er hann grunaður um vörslu fíkniefna. Þá er einstaklingurinn einnig grunaður um ólöglega dvöl í landinu.
Höfð afskipti af ofurölvi einstakling en sá hrækti á lögreglumann. Einstaklingurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum víman og hægt verður að ræða við hann.
Lögreglustöð 2
Bifreið stöðvuð en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Bifreið stöðvuð en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Höfð afskipti af einstaklingi sem er grunaður um ólöglega dvöl. Vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Bifreið stöðvuð en ökumaður er grunaður um akstur undir áhirfum áfengis.
Bifreið stöðvuð en ökumaður er grunaður um akstur undir áhirfum áfengis.
Bifreið stöðvuð en við athugun kom í ljós að tveir negldir hjólbarðar voru undir bifreiðinni og má eigandi því eiga vona á sekt.
Bifreið stöðvuð en ökumaður er grunaður um að hafa ekið á 140 km/klst. þar sem leyfður hámarkshraði við bestu aðstæður er 80 km/klst.
Bifreið stöðvuð en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Tilkynnt um einstakling sofandi ölvunarsvefni í strætó. Einstaklingurinn vakinn og neitaði hann að gefa upp hver hann væri og var hann því handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum víman.
Óskað eftir aðstoð lögreglu að skemmtistað en þar var ölvaður einstaklingur til vandræða. Einstaklingurinn handtekinn og síðar laus að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu.
Lögreglustöð 3
Höfð afskipti af unglingspilt á krossara sem hann hafði ekki réttindi á. Afgreitt með aðkomu foreldra.
Tilkynnt um umferðaróhapp.
Óskað eftir aðstoð lögreglu að skemmtistað en ölvaður einstaklingur neitaði að yfirgefa staðinn. Einstaklingnum vísað út.
Lögrelgumenn fundu mikla kannabislykt við eftirlit. Lögreglumnen gengu á lyktina og í kjölfarið voru tveir einstaklingar handteknir í kjölfarið og eru þeir vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Einstaklingur handtekinn fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Laus að lokinni skýrslutöku.
Höfð afskipti af einstaklingi og reyndist hann vera með eggvopn. Einstaklingurinn laus að lokinni skýrslutöku.
Höfð afskipti af einstaklingi sem gat ekki framvísað skilríkum eða gert sig skiljanlegan hver hann væri. Einstaklingurinn handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hægt var að ganga úr skugga um hver hann væri og var hann laus úr haldi lögreglu í kjölfarið.
Tilkynnt um umferðaróhapp.
Tilkynnt um hópslagsmál. Hópurinn hljóp á brott þegar sást í blá ljós lögreglu en þó fundust þrír einstaklingar og reyndist einn þeirra vera með eggvopn. Allir þrír héldu sína leið eftir viðræður við lögreglu.
Lögreglustöð 4
Tilkynnt um þjófnað úr verslun og er gerandi jafnframt grunaður um að hafa ráðist á starfsmann verslunarinnar. Grunaði laus að lokinni skýrslutöku.
Tilkynnt um líkamsárás og skemmdarverk. Grunaði laus að lokinni skýrslutöku.
Tilkynnt um unglingasamkvæmi í heimahúsi.

