Hugleiðingar veðurfræðings
Suðaustan og austan 5-13 m/s í dag. Lægð skammt suður af landinu þokast vestur. Það rignir víða frá henni, einkum á Suðausturlandi en norðaustanlands styttir upp með morgninum.
Austlægari vindur á morgun, kaldi eða stinningskaldi syðst en yfirleitt hægari annars staðar. Skýjað og lítilsháttar væta um landið austanvert, en skýjað með köflum vestantil og smáskúrir á stöku stað síðdegis.
Hiti 8 til 15 stig. Spá gerð: 14.09.2025 06:30. Gildir til: 15.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Austlæg átt, 5-13 m/s, en heldur hvassari á Vestfjörðum fram undir hádegi. Rigning með köflum og samfelldari úrkoma á Suðausturlandi, en styttir upp norðaustanlands.
Dálítil væta austantil og við norðurströndina á morgun, annars skýjað með köflum og stöku skúrir síðdegis. Hiti 8 til 15 stig. Spá gerð: 14.09.2025 07:44. Gildir til: 16.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag og þriðjudag:
Austan og norðaustan 5-13 m/s. Dálítil væta austantil og við norðurströndina, en bjart með köflum vestanlands og stöku skúrir síðdegis. Hiti 8 til 14 stig, en kólnar heldur á Norður- og Austurlandi á þriðjudag.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt og dálitlar skúrir eða él, en að mestu þurrt suðvestan- og vestanlands. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst.
Á fimmtudag og föstudag:
Austlæg eða breytileg átt og sums staðar smáskúrir, en dálítil él við norðausturströndina. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Norðaustlæg átt, skýjað með köflum og áfram svalt.
Spá gerð: 13.09.2025 20:18. Gildir til: 20.09.2025 12:00.

